Fotbolti.net
23.02.26 - 20:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
LiveyÍtalski boltinn

Ítalía: Moise Kean sjóðandi heitur - Albert ónotaður varamaður

Moise Kean

Moise Kean

Canon

Mynd: EPA

Fiorentina 1 - 0 Pisa
1-0 Moise Kean ('13 )
Albert Guðmundsson var ónotaður varamaður þegar Fiorentina lagði Pisa í botnbaráttuslag í kvöld. Albert er að jafna sig af meiðslum.

Fiorentina var með öll völd á vellinum í fyrri hálfleik. Þeim tókst hins vegar að koma boltanum aðeins einu sinni í netið. Það gerðist eftir rúmlega tíu mínútna leik þegar boltinn barst til Kean inn á teignum og hann skoraði af öryggi. Hann hefur skorað þrjú mörk í síðustu þremur leikjum.

Stjóri Pisa gerði þrefalda breytingu í hálfleik en liðinu tókst ekki að ógna David De Gea í marki Fiorentina mikið og mark Kean í fyrri hálfleiknum reyndist sigurmarkið.

Fiorentina er í 16. sæti með 24 stig eins og Cremonese og Lecce sem eru í sætunum fyrir neðan. Pisa er í 19. sæti með 15 stig.

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Inter8+1322
2Lazio8+1122
3Roma8+1318
4Milan8+818
5Como8+717
6Frosinone8+414
7Juventus8+314
8Torino8+213
9Cagliari8-313
10Napoli8+311
11Atalanta8-110
12Lecce8-59
13Bologna8-28
14Sassuolo8-48
15Monza8-37
16Genoa8-77
17Udinese8-84
18Fiorentina8-104
19Parma8-104
20Venezia8-113
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.