Fotbolti.net
23.02.26 - 14:30
Kári Snorrason

Prestianni settur í bráðabirgðabann og spilar ekki gegn Real

Leikurinn var stöðvaður í tíu mínútur eftir að Vinicius sakaði Prestianni um kynþáttaníð.

Leikurinn var stöðvaður í tíu mínútur eftir að Vinicius sakaði Prestianni um kynþáttaníð.

Canon

Mynd: EPA

Gianluca Prestianni, leikmaður Benfica, hefur verið settur í eins leiks bráðabirgðabann af UEFA á meðan sambandið heldur áfram rannsókn á kynþáttafordómum sem eiga hafa beinst að Vinicius Junior.

Prestianni mun því ekki spila seinni leik Benfica gegn Real Madrid í umspili Meistaradeildarinnar á miðvikudag.

Í fyrri leik liðanna sauð upp úr eftir að Vinicius og leikmenn Real Madrid sögðu Prestianni hafa verið með kynþáttaníð í garð Vinicius. Prestianni neitar því og Benfica styður frásögn leikmannsins.
UEFA hefur verið með málið til rannsóknar og gæti Prestianni farið í allt að tíu leikja bann ef hann verður dæmdur sekur.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.