Fótboltaleikjum hefur verið frestað í Mexíkó eftir að glæpaforinginn Rubén Nemesio Oseguera, betur þekktur sem El Mencho, var drepinn af mexíkóska hernum.
Í kjölfarið ríkir nú slæmt ástand í landinu þar sem glæpahringur El Mencho og mexíkóski herinn eru í miklum átökum.
Í kjölfarið ríkir nú slæmt ástand í landinu þar sem glæpahringur El Mencho og mexíkóski herinn eru í miklum átökum.
Íslenska landsliðið er nú við æfingar í Queretaro í Mexíkó þar sem leik var meðal annars frestað í gær. Ísland á að spila vináttulandsleik við Mexíkó aðfaranótt fimmtudags.
Leikurinn á að fara fram á Corregidora Stadium í Querataro og hefst klukkan 02:00 að íslenskum tíma aðfaranótt 26. febrúar. Leikurinn verður sýndur beint á Sýn í opinni dagskrá ef hann fer fram. ESPN fjallar um málið en þar segir mexíkóska fótboltasambandið hafi ekki enn tekið ákvörðun um það hvort leiknum verði frestað, aflýst eða hann spilaður; það sé allavega ekki búið að gefa neitt upp um það
Hópurinn:
Anton Ari Einarsson - Breiðablik
Viktor Freyr Sigurðsson - Fram
Höskuldur Gunnlaugsson - Breiðablik
Karl Friðleifur Gunnarsson - Víkingur R.
Damir Muminovic - Grindavík
Hans Viktor Guðmundsson - KA
Guðmundur Kristjánsson - Stjarnan
Guðmundur Þórarinsson - ÍA
Baldur Kári Helgason - FH
Gylfi Þór Sigurðsson - Víkingur R.
Haukur Andri Haraldsson - ÍA
Kolbeinn Þórðarson - IFK Göteborg
Daníel Hafsteinsson - Víkingur R.
Birnir Snær Ingason - Stjarnan
*Hallgrímur Mar Steingrímsson - KA
*Óskar Borgþórsson - Víkingur R.
Ágúst Orri Þorsteinsson - Breiðablik
Helgi Guðjónsson - Víkingur R.
Emil Atlason - Stjarnan
*Jóhann Berg Guðmundsson
Athugasemdir



