Man City gerir tilboð í Olmo - Barcelona reynir líka að fá spænska landsliðsmanninn - Wan-Bissaka vill ekki fara til West Ham
   þri 23. apríl 2024 18:11
Brynjar Ingi Erluson
Byrjunarlið Arsenal og Chelsea: Palmer ekki með - Partey á miðjunni
Arsenal og Chelsea mætast á Emirates-leikvanginum
Arsenal og Chelsea mætast á Emirates-leikvanginum
Mynd: Getty Images
Arsenal og Chelsea mætast í 29. umferð ensku úrvalsdeildarinnar klukkan 19:00 í kvöld, en leiknum var upphaflega frestað í febrúar vegna þátttöku Chelsea í enska bikarnum.

Í kvöld á Arsenal möguleika á því að ná þriggja stiga forystu á Liverpool í titilbaráttunni og fjögurra stiga á Manchester City, á meðan Chelsea er að reyna að komast í Evrópukeppni fyrir næstu leiktíð.

Chelsea er án Cole Palmer, sem hefur verið þeirra besti maður á tímabilinu. Mykhailo Mudryk kemur inn í hans stað.

Malo Gusto, Trevoh Chalobah og Thiago Silva detta allir úr byrjunarliðinu og þá koma þeir Axel Disasi, Benoit Badiashile og Alfie Gilchrist inn.

Mikel Arteta gerir tvær breytingar á liði Arsenal. Thomas Partey kemur inn fyrir Gabriel Jesus, sem tekur sér sæti á bekknum og þá kemur Takehiro Tomiyasu inn fyrir Jakub Kiwior.

Arsenal: Raya, White, Saliba, Gabriel, Tomiyasu, Odegaard, Rice, Partey, Saka, Havertz, Trossard.
Varamenn: Ramsdale, Jesus, Smith Rowe, Martinelli, Nketiah, Kiwior, Jorginho, Vieira, Zinchenko.

Chelsea: Petrovic, Gilchrist, Badiashile, Disasi, Cucurella, Fernandez, Mudryk, Madueke, Caicedo, Gallagher, Jackson.
Varamenn: Bettinelli, Silva, Sterling, Chalobah, Chukwuemeka, Casadei, Deivid, Tauriainen, Dyer.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 0 0 0 0 0 0 0 0
2 Aston Villa 0 0 0 0 0 0 0 0
3 Bournemouth 0 0 0 0 0 0 0 0
4 Brentford 0 0 0 0 0 0 0 0
5 Brighton 0 0 0 0 0 0 0 0
6 Chelsea 0 0 0 0 0 0 0 0
7 Crystal Palace 0 0 0 0 0 0 0 0
8 Everton 0 0 0 0 0 0 0 0
9 Fulham 0 0 0 0 0 0 0 0
10 Ipswich Town 0 0 0 0 0 0 0 0
11 Leicester 0 0 0 0 0 0 0 0
12 Liverpool 0 0 0 0 0 0 0 0
13 Man City 0 0 0 0 0 0 0 0
14 Man Utd 0 0 0 0 0 0 0 0
15 Newcastle 0 0 0 0 0 0 0 0
16 Nott. Forest 0 0 0 0 0 0 0 0
17 Southampton 0 0 0 0 0 0 0 0
18 Tottenham 0 0 0 0 0 0 0 0
18 Luton 38 6 8 24 52 85 -33 26
19 Burnley 38 5 9 24 41 78 -37 24
19 West Ham 0 0 0 0 0 0 0 0
20 Sheffield Utd 38 3 7 28 35 104 -69 16
20 Wolves 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner