Fotbolti.net
23.06.15 - 15:52
Magnús Már Einarsson

Alexander Jackson Möller í BÍ/Bolungarvík (Staðfest)

Úr leik KA og BÍ/Bolungarvíkur um síðustu helgi.

Úr leik KA og BÍ/Bolungarvíkur um síðustu helgi.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

BÍ/Bolungarvík hefur samið við danska varnarmanninn Alexander Jackson Möller. Samúel Samúelsson formaður knattspyrnudeildar BÍ/Bolungarvíkur staðfesti þetta í samtali við Fótbolta.net í dag.

Alexander þekkir til á Vestfjörðum því hann spilaði með BÍ/Bolungarvík hluta sumars 2012.
Þessi 25 ára gamli leikmaður fær leikheimild með BÍ/Bolungarvík þegar félagaskiptaglugginn opnar þann 15. júlí næstkomandi.

Alexander er væntanlegur til Íslands þann 6. júlí og fyrsti leikur hans verður með BÍ/Bolungarvík gegn Selfyssingum þann 18. júlí.

Sóknarmaðurinn ungi Magnús Pétur Bjarnason er aftur á móti farinn frá BÍ/Bolungarvík aftur í Fjölni. Magnús kom til BÍ/Bolungarvíkur á láni í vor og spilaði fjóra leiki með skástrikinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.