Fotbolti.net
23.06.15 - 12:00
Fótbolti.net

Hófið - Batman, fagnaðarblót og dómarahrós

Stjarnan byrjar illa og Dúllan er orðin reið.

Stjarnan byrjar illa og Dúllan er orðin reið.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jafntefli var í toppslag FH og Breiðabliks sem og á tveimur öðrum völlum. Víkingar og Skagamenn unnu langþráða sigra og KR lagði Stjörnuna í leik sem gaf þau skilaboð að KR-ingar ætla að vera áfram með í toppbaráttunni.
Leikur umferðarinnar: ÍA 4 - 2 Keflavík
Víst getum við skorað mörk án Garðars Gunnlaugssonar! Þetta voru skilaboðin sem Skagamenn gáfu í gær... þeir geta það allavega gegn Keflavík sem heldur áfram í sama farinu þrátt fyrir þjálfaraskipti.
Skoðaðu skýrsluna

EKKI lið umferðarinnar:

Í Ekki liðinu má finna nöfn eins og Kiko Insa og Gunnar Þorsteinsson sem hafa verið ansi oft í þessum flokki. Halldór Orri Björnsson er fulltrúi Stjörnunnar en hann hefur verið stór vonbrigði það sem af er sumri.

Söknuður umferðarinnar: Miðverðir Fjölnis
Daniel Ivanovski og Bergsveinn Ólafsson voru ekki með þegar Fjölnir tapaði fyrir Víkingum. Ivanovski verður reyndar ekki meira með þar sem hann fékk samningi sínum rift af persónulegum ástæðum. Þá var Bergsveinn í banni. Haukur Lárusson spilaði sinn fyrsta deildarleik í sumar og var úti á túni. Víkingar nýttu sér það.

Mark umferðarinnar: Kristinn Freyr Sigurðsson
Skoraði ansi skemmtilegt mark þegar hann jafnaði gegn ÍBV. Boltinn skaust í jörðina áður en hann söng uppi í horninu. Úrslitin þó vonbrigði fyrir Val sem þarf að vinna ÍBV heima til að vera með stóru strákunum við toppinn.
Sjáðu markasyrpu umferðarinnar af Vísi

Heiðursverðlaun umferðarinnar: Tómas Meyer
Tómas Meyer á endurkomu umferðarinnar. Hann mun taka viðtöl fyrir Fótbolta.net á völdum völlum í sumar og fór á kostum eftir stórleik FH og Breiðabliks. Fáir fagna endurkomunni meira en Heimir Guðjóns sem var laufléttur í viðtali við Meyerinn eftir leik.

Ummæli umferðarinnar: Milos Milojevic, þjálfari Víkings
„Ég í rauninni gerði ekki neitt nema koma inn í leikinn og klæða mig flott,\" sagði Milos Milojevic í viðtali eftir sigur Víkinga.

Fögnuður umferðarinnar: Henrik Bödker
Það er alltaf líf og fjör í kringum Bödker og hann fagnaði ákaflega eftir að KR vann sigur gegn sínum gömlu félögum í Stjörnunni í „Viltu vera memm\" leiknum.

Ekki svo mikil dúlla umferðarinnar: Siggi Dúlla
Liðsstjóri Stjörnunnar var rekinn upp í stúku eftir að hafa mótmælt réttum dómi Erlends Eiríkssonar. Það virðist vera mikill pirringur í gangi í Garðabænum enda hefur titilvörnin gengið gríðarlega illa.

Atvik umferðarinnar: Blót Kassim Doumbia
\"Fuck off!\" - Við vitum ekki hverju er hægt að bæta við þessa umræðu en fagnaðarblót Kassim er klárlega atvikið.

Hrós umferðarinnar: Stöð 2 Sport
Frábær umgjörð í kringum stórleik FH og Breiðabliks. Þrír leikir í beinni og Pepsi-mörkin á sínum stað. Vel gert.

Dómari umferðarinnar: Erlendur Eiríksson
Dómararnir svöruðu kallinu og allir stóðust þeir prófið í þessari umferð! Erlendur Eiríksson var með risastórar ákvarðanir hárréttar þegar KR vann Stjörnuna og sma má segja um Gunnar Jarl Jónsson í toppslagnum kvöldið á undan. Svo verður að hrósa aðstoðardómurunum líka, þeir hafa rifið sig upp.

Bolur umferðarinnar: Thomas Nielsen
Markvörður Víkinga spilar í Batman-bol undir markmannsbúningnum.

Ef Thomas er að vinna með Batman-bol undir markvarðatreyjunni er honum flest fyrirgefið. Maður með góðan smekk. pic.twitter.com/2gcMF1Zur9

— Tómas Þór Þórðarson (@tomthordarson) June 23, 2015



Brot af #fotboltinet á Twitter:

Hvernig getur markmaður Stjörnunnar mótmælt þessu rauða spjaldi???? #fotboltinet #pepsi365 #þvæla #bull #rautt #common

— Simmi Masson (@SimmiMasson) June 23, 2015


Róum okkur, kannski var Doumbia að gefa einhver skilaboð til konunar sinnar eftir að hún tilkynnti honum að hún væri ólétt #fotboltinet

— Guðmundur Jónsson (@Gummon85) June 22, 2015


Loksins þegar að Erlendur dómari dæmir leik í Pepsi þá smellur allt. #fotboltinet #pepsi365

— Sindri Ágústsson (@sindriagusts) June 22, 2015


So far, þá finnst mér flestir þjálfarar og flestir leikmenn væla út af dómurum eftir tapleiki. Ekki hægt að hrósa hinu liðinu. #fotboltinet

— Sveinbjörn Bergmann (@SvenniMar) June 22, 2015


Stjörnumenn aðeins ofmetnast eftir síðasta tímabil, með allt í skrúfunni og skipperinn ráðþrota #fotboltinet

— Jón Frímann (@jonfrimann) June 22, 2015


Rúnar Páll í ruglinu í viðtali eftir leik hraunar yfir dómara sem stóðu sig vel og segir Stjörnuna hafa leikið vel Æ Rúnar plís #fotboltinet

— Ragnar Auðun Árnason (@raggiau) June 22, 2015


Það er tvennt orðið „(staðfest)„ í @Pepsideildin. Stjarnan ver ekki titilinn og Keflavík fellur. #fotboltinet #pepsi365

— Haukur V. Magnússon (@haukur80) June 22, 2015


Blikar betri á öllum sviðum, frábær spilamennska og fallegur fótbolti. Þjófnaður í lokinn hjá FH sem áttu í raun ekkert skilið #fotboltinet

— Kristján I. Gunnars (@Kristjan_Ingi) June 21, 2015


Tilviljun? Ég held ekki #fotboltinet pic.twitter.com/qof7B7E81T

— Aron Páll Gylfason (@heilagursjomli) June 22, 2015


Rambaði á þennan gullmola. Gaupahornið með Óla Þórðar. Þeir tveir hrikalega góðir saman. #fotbolti #fotboltinet
https://t.co/cZfk27YFJ2

— Davíð Már (@DavidMarKrist) June 23, 2015

Lokahóf níundu umferðar.

Lokahóf níundu umferðar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net

Nef umferðarinnar: Nefið á Ásgeiri Erlendssyni fékk góðan sjónvarpstíma í Pepsi-mörkunum.

Nef umferðarinnar: Nefið á Ásgeiri Erlendssyni fékk góðan sjónvarpstíma í Pepsi-mörkunum.

Canon

Mynd: Skjáskot/Stöð 2 Sport

Tómas Meyer er orðinn spyrill Fótbolta.net.

Tómas Meyer er orðinn spyrill Fótbolta.net.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.