Fotbolti.net
23.06.15 - 13:30
Magnús Már Einarsson

Lucio til Indlands (Staðfest)

Lucio til Indlands (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Brasilíski varnarmaðurinn Lucio er genginn til liðs við FC Goa í Ofurdeildinni á Indlandi.

Hinn 37 ára gamli Lucio var síðast á mála hjá Palmeiras í heimalandi sínu.

Hann hefur nú samið við FC Goa en landi hans Zico þjálfar liðið.
Robert Pires og Andre Santos fyrrum leikmenn Arsenal voru báðir á mála hjá Goa á síðasta tímabili en þeir eru nú horfnir á braut.

Lucio var á sínum tíma fyrirliði brasilíska landsliðsins en hann spilaði meðal annars með FC Bayern, Bayer Leverkusen og Inter á ferli sínum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.