23.06.15 - 15:56
Magnús Már Einarsson
Pepe Reina til Napoli (Staðfest)

Reina er mikill stuðbolti.

Mynd: Getty Images

Reina er mikill stuðbolti.

Mynd: Getty Images

Napoli hefur fengið markvörðinn Pepe Reina í sínar raðir frá FC Bayern.
Reina kann vel við sig hjá Napoli en hann var á láni hjá félaginu frá Liverpool tímabilið 2013/2014 áður en hann gerði þriggja ára samning við Bayern í fyrrasumar.
Hinn 32 ára gamli Reina hefur verið varamarkvörður hjá Bayern þar sem samkeppnin hefur verið erfið við Manuel Neuer.
Reina óskaði eftir að fá að fara frá Bayern til að fá að spila meira og þýsku meistararnir urðu við ósk hans.
Samtals spilaði Reina einungis þrjá leiki á tíma sínum hjá Bayern.