Fotbolti.net
23.06.15 - 19:00
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Pereyra til Juventus á rúmar 15 milljónir (Staðfest)

Pereyra til Juventus á rúmar 15 milljónir (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Roberto Pereyra er 24 ára gamall argentínskur kantmaður sem er búinn að spila sex landsleiki fyrir Argentínu síðan í október og var í lykilhlutverki hjá Juventus á síðasta tímabili.

Udinese lánaði Pereyra til Juve á síðasta tímabili fyrir eina og hálfa milljón evra. Í lánssamningnum var kaupákvæði sem gaf Juve kauprétt á leikmanninum fyrir rúmlega 15 milljónir evra til viðbótar.
Pereyra átti glæsilegt tímabil hjá Juve sem vann deild og bikar og tapaði í úrslitaleik Meistaradeildarinnar.

Pereyra er búinn að skrifa undir fjögurra ára samning við félagið eftir að hafa spilað 52 leiki á sínu fyrsta tímabili.

Heimild: FI

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.