Riðlakeppninni á Evrópumótinu er lokið og núna er það ljóst hvaða lið mætast í 16-liða úrslitunum.
Englendingar eru frekar súrir enda leit á tímapunkti fyrir að þeir myndu mæta Ungverjalandi. Þeir mæta Þýskalandi þess í stað eftir að Þjóðverjar jöfnuðu metin á 84. mínútu gegn Ungverjalandi.
Hér að neðan má sjá hvernig 16-liða úrslitin líta út:
Belgía - Portúgal (Seville)
Ítalía - Austurríki (London)
Frakkland - Sviss (Búkarest)
Króatía - Spánn (Kaupmannahöfn)
Svíþjóð - Úkraína - (Glasgow)
England - Þýskaland - (London)
Holland - Tékkland (Búdapest)
Wales - Danmörk (Amsterdam)
Athugasemdir