Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   fös 23. júlí 2021 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Dybala í samningsviðræðum við Juventus
Mynd: Getty Images
Argentínski fótboltasnillingurinn Paulo Dybala er í samningsviðræðum við Juventus.

Dybala er í viðræðum við félagið um nýjan langtímasamning enda er búist við að hann fái stórt hlutverk undir stjórn Massimiliano Allegri.

Dybala gerði flotta hluti þegar Allegri var við stjórnvölinn hjá Juve en hefur ekki gengið sérlega vel undanfarin ár.

Það eru ýmis stórlið sem hafa verið orðuð við Dybala í gegnum tíðina en hann vill vera áfram hjá Juve.

Jorge Antun, umboðsmaður Dybala, er með flugmiða til Ítalíu í næstu viku þar sem hann mun ræða nýjan samning fyrir skjólstæðing sinn.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner