Fotbolti.net
23.08.26 - 07:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Fabinho og Salah verða samherjar á ný

Fabinho og Salah verða samherjar á ný
Canon

Mynd: EPA

Brasilíski miðjumaðurinn Fabinho er að ganga til liðs við Trabzonspor. Fabrizio Romano greinir frá.

Hann er án félags eftir að hafa yfirgefið sádi arabíska félagið Al-Ittihad í sumar.
Fabinho er 32 ára miðjumaður en hann gekk til liðs við Al-Ittihad frá Liverpool árið 2023.

Hann var leikmaður Liverpool frá 2018 en hann vann úrvalsdeildina og Meistaradeildina með liðinu. Hann var liðsfélagi Mohamed Salah hjá enska liðinu en þeir verða samherjar á ný þar sem Salah gekk til liðs við Trabzonspor í sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.