Fotbolti.net
22.08.26 - 18:16
Kristján Hrafn Kristjánsson

Elmar Atli: Léttir að klára loksins leik

Auglýsing
Elmar Atli fyrirliði Vestra

Elmar Atli fyrirliði Vestra

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin

Vestri vann mikilvægan sigur á Leikni R. á heimavelli fyrr í dag. Leikar enduðu 2-0 og eftir úrslit dagsins eru Vestri sloppnir við fall úr Lengjudeildinni. 

Fótbolti.net ræddi við Elmar Atla Garðarsson fyrirliða Vestra eftir leik.

Lestu um leikinn: Vestri 2 - 0 Leiknir R.

„Léttir að klára loksins leik, það eru búið að vera lélegur bragur á liðinu á síðustu vikum, fyrir utan sigurinn gegn ÍR um daginn. En það er mjög fínt að geta klárað þetta svona og getað andað léttar restina af tímabilinu." Sagði Elmar eftir leik.

Hvað fannst þér um frammistöðu liðsins í dag?

„Bara allt í lagi, það var mikið undir fyrir bæði lið, ég held að bæði lið hafi viljað klára þennan leik upp á framhaldið að gera. Þetta var kannski ekkert frábær fótbolti í dag en við skorum tvö mörk og höldum hreinu, við tökum það bara."


Eftir úrslit dagsins er ljóst að Vestri mun spila í Lengjudeildinni að ári, Vestri var á hættusvæði fyrir leik og gátu enn fallið. Það hlýtur að vera þægilegt að vera öruggir með ykkar sæti í deildinni með tvo leiki eftir?

„Já algjörlega, við eigum tvo erfiða leiki eftir, úti á móti Aftureldingu og heima gegn Þrótti. Það eru tvö hörku lið og það hefði verið óþægilegt að koma inn í þá tvo leiki ef við hefðum tapað í dag."


Vestri mætir Aftureldingu í næsta leik í Mosfellsbæ, en Vestri vann Aftureldingu á heimavelli fyrr í sumar. Hvernig lýst þér á þann leik?

„Lítandi til baka á tímabilið þá var fyrri leikurinn gegn Aftureldingu líklega okkar besti leikur í sumar. Þeir eru á hörku siglingu og ætla að reyna að klára þessa deild. En við mætum ekkert í þennan leik til að tapa, við komum til að sækja þrjá punkta, það er bara þannig."

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum fyrir ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.