Fotbolti.net
22.08.26 - 17:06
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson

Ray eftir 6-1 tap: Ég get tekið á mig eiginlega flest allt

Auglýsing
Ray eftir 6-1 tap: Ég get tekið á mig eiginlega flest allt
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin

„Mér líður illa" sagði Ray Anthony Jónsson, þjálfari Grindavíkur, eftir 6-1 tap á útivelli gegn Fylki í Lengjudeildinni.

Lestu um leikinn: Fylkir 6 - 1 Grindavík

„Þetta var lélegur leikur og ég get tekið á mig eiginlega flest allt. Ég held að taktíkin hafi ekki gengið upp hjá okkur."

„Við vorum allt í lagi í seinni, en Fylkismenn voru kannski aðeins að slaka á. Kannski jafnvægið á liðinu var ekki gott, eins og ég segi þá tek ég stóran hlut af þessu."

„Við vorum aðeins skárri í seinni, en við vorum bara svo opnir í níutíu mínútur oft á tíðum. Þeir eru mjög beinskeyttir, þeir eru mjög góðir í því að pressa og við vorum ekki tilbúnir. Þá snýr það að þjálfaranum sem setti upp leikinn aðeins of vitlaust."

Má segja að mörk Fylkis voru gjafir?

„Við fáum tvö mörk á okkur úr föstum leikatriðum, en og aftur held ég að við höfum fengið á okkur sjö mörk úr föstum leikatriðum þetta tímabil. Við fengum tvö núna og á móti Aftureldingu eitt líka, þetta eru svolítið stórir leikir sem við erum að klikka á."

Þarf að þétta vörnina fyrir fallbaráttuna?

„Já og nei, við þurfum að ná úrslitum og hvernig sem við gerum það, þá verðum við að loka fyrir rammanum hjá okkur. Við þurfum líka jafnvel að skora, þetta verður erfitt verkefni en við förum í gegnum þetta með sjálfstraust."

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.