Fotbolti.net
23.08.26 - 12:13
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Man City kaupir hinn 18 ára gamla Bouaddi fyrir 100 milljónir

Ayyoub Bouaddi.

Ayyoub Bouaddi.

Canon

Mynd: EPA

Manchester City hefur komist að samkomulagi við franska félagið Lille um kaup á miðjumanninum Ayyoub Bouaddi.

Fabrizio Romano greinir frá þessu og David Ornstein gerir það líka.
City kemur til með að borga um 100 milljónir evra fyrir þennan bráðefnilega leikmann.

Bouaddi, sem er 18 ára gamall, var búinn að samþykkja að ganga í raðir Man City í síðasta mánuði en núna hafa félögin náð saman. Hann skrifar undir fimm ára samning með möguleika á einu ári til viðbótar.

Bouaddi kemur til með að hjálpa City að fylla í skarðið sem Rodri skilur eftir en hann var seldur til Barcelona á dögunum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.