Fotbolti.net
23.08.26 - 10:48
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Lýsa yfir vantrausti gegn Infantino

Þorvaldur Örlygsson, formaður KSÍ. Við hlið hans situr Eysteinn Pétur Lárusson, framkvæmdastjóri sambandsins.

Þorvaldur Örlygsson, formaður KSÍ. Við hlið hans situr Eysteinn Pétur Lárusson, framkvæmdastjóri sambandsins.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fótboltasambönd Íslands, Danmerkur, Færeyja, Finnlands, Noregs og Svíþjóðar hafa misst traust á forseta FIFA og lýsa yfir alvarlegum áhyggjum af stjórnarháttum og ákvarðanatöku innan FIFA. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá KSÍ núna í morgun.

Forsvarsmenn sambandanna sex komu saman á árlegum fundi norrænna fótboltasamband um helgina þar sem meðal annars voru rædd sameiginleg hagsmunamál og þróun mála innan alþjóðlegs fótbolta.
Noregur kallar eftir afsögn Infantino - „Rúinn trausti“
TENGT EFNI

Noregur kallar eftir afsögn Infantino - „Rúinn trausti“

Að fundinum loknum sendu samböndin frá sér sameiginlega yfirlýsingu þar sem þau gagnrýna stöðu mála hjá FIFA og kalla eftir auknu trausti, gagnsæi og bættum stjórnarháttum.

„Knattspyrnusambönd Norðurlandanna sex hafa misst traust á forseta FIFA og hafa alvarlegar áhyggjur af stjórnarháttum og ákvarðanatöku í æðstu lögum samtakanna,“ segir í yfirlýsingunni sem KSÍ meðal annars birtir.

„Norrænu knattspyrnusamböndin standa þétt að baki UEFA og þeim aðgerðum sem aðildarsambönd UEFA hafa sameiginlega lagt til. Við væntum þess að FIFA veiti bindandi fullvissu fyrir því að stjórnarhættir FIFA eða keppnir á vegum samtakanna verði aldrei aftur opnaðar fyrir einkaeignarhald."

Að lokum skora norrænu knattspyrnusamböndin á FIFA að hefja víðtæka og sjálfstæða úttekt á stjórnarháttum og skipulagi sambandsins.

Fyrirætlanir Giannis Infantino, forseta FIFA, hafa verið harðlega gagnrýndar en hann ætlaði sér að bjóða utanaðkomandi fjárfestum að innviðum sambandsins.
Gianni Infantino, forseti FIFA, með Donald Trump, Bandaríkjaforseta.

Gianni Infantino, forseti FIFA, með Donald Trump, Bandaríkjaforseta.

Canon

Mynd: EPA

Lýsa yfir vantrausti gegn Infantino
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.