23.08.26 - 08:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Meiðslavandræði elta miðjumann Palace

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Chadi Riad, miðjumaður Crystal Palace, hefur verið gríðarlega óheppinn með meiðsli en það er útlit fyrir að hann verði lengi frá vegna hnémeiðsla.
Riad var í byrjunarliðinu í 2-0 tapi gegn Everton í gær. Hann þurfti að fara af velli vegna hnémeiðsla og var borinn út af með tárin í augunum.

Hann hefur aðeins spilað 15 leiki í öllum keppnum fyrir Crystal Palace síðustu tvö tímabil.
Hann meiddist illa í janúar í fyrra og var fjarverandi allt árið. Hann fer í myndatöku í dag og þá kemur í ljós hversu alvarleg meiðslin eru.