23.09.26 - 18:01
Brynjar Ingi Erluson
Evrópubikarinn: Blikar í erfiðri stöðu eftir markaleik í Kópavogi - Naumt tap hjá FH

Breiðablik er í vondri stöðu

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Úr leik Blika og Czarni

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

FH tapaði naumlega fyrir Frankfurt

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Breiðablik er í vondri stöðu

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Breiðablik og FH töpuðu bæði fyrri leikjum sínum í forkeppni Evrópubikarsins í dag.
Breiðablik fékk töluvert stærri skell en FH, en liðið tapaði 6-2 fyrir Czarni frá Póllandi á Kópavogsvelli.
Gestirnir fóru hamförum í fyrri hálfleiknum og skoruðu fjögur mörk. Klaudia Milek, sem átti heldur betur eftir að láta að sér kveða, kom Czarni yfir á 21. mínútu með skalla eftir aukaspyrnu. Karlina Miksone bætti öðru marki við fimmtán mínútum síðar eftir skelfilega sendingu Taylor Kane beint á hana.
Zofia Buszewska og Milek bættu svo tveimur mörkum við fyrir hlé. Buszewska skoraði með skalla eftir aðra aukaspyrnu gestanna og skömmu síðar slapp Milek í gegn og skoraði sitt annað mark.
Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir náði þó að laga stöðuna áður en flautað var til hálfleiks. Blikar fengu hornspyrnu sem var skölluð frá og í kjölfarið átti Líf Joostsdóttir van Bemmel fyrirgjöf á Úlfu sem minnkaði muninn.
Það gaf Blikum von en hún var fljótt slegin niður í upphafi síðari hálfleiks þegar Milek fullkomnaði þrennu sína. Hún fékk sendingu í gegn og vippaði boltanum laglega yfir Kane í markinu.
Karitas Tómasdóttir minnkaði muninn aftur niður í þrjú mörk með skalla eftir hornspyrnu Öglu Maríu Albertsdóttur á 69. mínútu, en pólska liðið svaraði strax. Milek skoraði þá sitt fjórða mark með frábæru skoti. Sú var heldur betur í stuði.
Vont varð síðan verra fyrir Blika þegar Líf fékk sitt annað gula spjald fyrir brot og var rekin af velli. Íslandsmeistararnir léku því manni færri síðustu tuttugu mínúturnar eða svo.
Gestirnir bættu ekki við fleiri mörkum og fara Blikar því með bakið þétt upp við vegginn í seinni leikinn sem fer fram í Póllandi.
Naumt tap FH
FH stóð vel í þýska stórliðinu Eintracht Frankfurt, en Þjóðverjunum tókst þó að vinna nauman 1-0 sigur á Hafnfirðingum í Kaplakrika.
Aldís Guðlaugsdóttir var traust í markinu og varði vel á meðan FH náði að skapa sér ágæt færi í fyrri hálfleik. Mikilvægast fyrir Hafnfirðinga var þó að halda hreinu fram að hálfleik og það tókst.
Aldís hélt áfram að gera vel í síðari hálfleiknum og hélt Frankfurt í skefjum, en eftir um klukkutíma fengu Þjóðverjarnir vítaspyrnu þegar Jónína Linnet braut af sér inni í teig. Rebecka Blomqvist fór á punktinn og skoraði. Aldís valdi rétt horn en náði ekki til boltans.
Það var svekkjandi fyrir FH þar sem Frankfurt hafði ekki skapað sér mikið fram að markinu.
FH reyndi að sækja jöfnunarmark undir lokin en það kom ekki og lokatölur 1-0 fyrir Frankfurt. Seinni leikurinn fer fram í Frankfurt eftir viku og á FH enn góðan möguleika á að komast áfram í 16-liða úrslitin.
Breiðablik 2 - 6 Czarni
0-1 Klaudia Milek ('21 )
0-2 Karlina Miksone ('36 )
0-3 Zofia Buszewska ('41 )
0-4 Klaudia Milek ('44 )
1-4 Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir ('45 )
1-5 Klaudia Milek ('50 )
2-5 Karitas Tómasdóttir ('69 )
2-6 Klaudia Milek ('70 )
Rautt spjald: Líf Joostdóttir van Bemmel, Breiðablik ('76) Lestu um leikinn
FH 0 - 1 Eintracht Frankfurt
0-1 Rebecka Blomqvist ('61 , víti)
Lestu um leikinn