Fotbolti.net
23.09.26 - 14:54
Elvar Geir Magnússon

Hákon Rafn: Ég er sem betur fer klár

Auglýsing
Hákon Rafn Valdimarsson.

Hákon Rafn Valdimarsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
Landsliðsmarkvörðurinn Hákon Rafn Valdimarsson segist vera klár í landsleikina framundan en Ísland mætir Eistlandi á Laugardalsvelli á laugardag í fyrsta Þjóðardeildarleiknum af fjórum í þessum glugga.

Hákon var með tak í bakinu og var því ekki með félagsliði sínu, Brentford á Englandi, í deildabikarleik gegn Reading á dögunum. Þegar hann ræddi við Fótbolta.net á landsliðshótelinu í dag var fyrsta spurning hvort hann væri klár í landsleikina?
„Já, ég er sem betur fer klár. Ég tók hvíld í viku og þurfti að sleppa þessum bikarleik, eitthvað sem margir tóku eftir. Eftirá að hyggja var þetta góð ákvörðun og þá gat maður verið klár núna," segir Hákon.

Eins og áður segir er leikur gegn Eistlandi á laugardag. Svo koma leikir gegn Lúxemborg úti og Búlgaríu heima. Glugganum lýkur á öðrum leik við Eistland, þá á útivelli.

„Spennandi. Þetta er langt og mikið ferðalag en við þurfum að gera þetta vel. Það hefur væntanlega verið stillt upp góðu prógrammi, hvernig menn æfa og hvernig er með hvíld og annað. Það verður bara gaman að spila svona marga leiki á stuttum tíma."

Elías Rafn Ólafsson, aðalmarkvörður Íslands, verður ekki með í þessum glugga vegna meiðsla en Rúnar Alex Rúnarsson er kominn aftur í hópinn. Er ekki gaman að fá Rúnar Alex inn?

„Mjög gaman. Hann var þegar ég kom fyrst inn í landsliðið. Ég þekki hann vel, við höfum verið í góðu sambandi og það er bara gaman að æfa með honum aftur," segir Hákon.

Viðtalið er í heild í sjónvarpinu hér að ofan en þar ræðir Hákon meðal annars um lífið í Brentford.
Hákon Rafn: Ég er sem betur fer klár
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.