Fotbolti.net
23.09.26 - 10:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Rooney: Hópurinn er slappur og það átti að kaupa fleiri

Carrick

Carrick

Canon

Mynd: EPA

„Það verður alltaf pressa á stjóra Manchester United og Michael veit það," segir Wayne Rooney, markahæsti leikmaður í sögu Manchester United, í viðtali á talkSPORT.

Rooney segir að hópurinn hjá United sé ekki nægilega sterkur og það hefði þurft að kaupa fleiri leikmenn í sumar. Youri Tielemans, Carlos Baleba og Andrey Santos voru fengnir inn til að styrkja miðsvæðið. United hefur einungis unnið einn af fyrstu fimm deildarleikjum sínum á tímabilinu. Liðið situr í 12. sæti með fimm stig.
;,Ef þú ert ekki að vinna fótboltaleiki hjá Man United þá kemur strax pressa ef þú vinnur ekki í einum leik. Þetta hefur ekki verið ákjósanleg byrjun á tímabilinu. Það eru nokkrir hlutir sem mér fannst að félagið hefði þurft að gera áður en glugginn lokaði, það vantaði fleiri leikmenn. Hópurinn er pínu slappur."

„Carrick verður að finna leið til að ná því besta úr leikmönnunum sem eru til að komast upp töfluna eftir landsleikjahléið. Ég held að þetta hlé hafi komið á réttum tíma. Carrick hefur sýnt að hann getur náð í úrslit með þennan hóp. Menn verða að setja hausinn niður, leggja á sig og vonandi ná í betri úrslit."

„Sem stjóri viltu alltaf meira og ég er viss um að Carrick hefði viljað fá meira inn í glugganum, en hann er með þessa leikmenn til að vinna með. Ég er á því að enska úrvalsdeildin sé sterkari; það eru betri lið í deildinni."

„Ég vona að Carrick nái að snúa genginu við,"
segir Rooney.
Rooney

Rooney

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Man City5+815
2Arsenal5+412
3Brighton5+1110
4Brentford5+69
5Leeds5+49
6Liverpool5+39
7Everton5+39
8Hull City5+28
9Newcastle508
10Chelsea5-27
11Ipswich Town5-46
12Man Utd505
13Nott. Forest5-15
14Sunderland5-44
15Crystal Palace5-54
16Aston Villa5-54
17Bournemouth5-23
18Coventry5-93
19Fulham5-32
20Tottenham5-62
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.