Fotbolti.net
22.09.26 - 21:30
Ívan Guðjón Baldursson

„Ég lifði fyrir landsliðið"

„Ég lifði fyrir landsliðið"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eimskip
Rúnar Már Sigurjónsson leggur skóna á hilluna eftir tímabilið og gaf kost á sér í ítarlegt viðtal við Fótbolta.net.
Rúnar Már vill starfa áfram innan fótboltans
TENGT EFNI

Rúnar Már vill starfa áfram innan fótboltans

Hann ræddi meðal annars landsliðsferilinn þar sem hann skoraði 2 mörk í 32 leikjum og var partur af hópnum sem náði sögulegum árangri á EM 2016 í Frakklandi.

Landsliðsmörkin tvö komu í fyrsta og síðasta leik landsliðsferilsins. Hann hefði eflaust spilað og skorað meira ef hann hefði ekki verið í samkeppni við nokkra af bestu miðjumönnum Íslandssögunnar um byrjunarliðssæti.

„Að hafa verið partur af þessu gullaldarliði og fá að upplifa þeta allt með þeim var geggjað. Auðvitað hefði maður eins og allir viljað spila miklu meira, en við spiluðum mikið til á sama liðinu mikið til í sex ár. Ég var í besta sætinu oft að fylgjast með því, beint frá bekknum," sagði Rúnar, sem lifði fyrir landsliðið. Landsliðið var alltaf í fyrsta sæti þegar hann þurfti að taka ákvörðun í lífinu.

Sorglegt að líkami og haus spilaði ekki alveg saman
TENGT EFNI

Sorglegt að líkami og haus spilaði ekki alveg saman



„Á einhverjum öðrum tíma hefðu landsleikirnir mögulega orðið miklu fleiri. Það var geggjað að vera partur af þessu, geggjað að hafa kynnst strákunum og öllum þjálfurunum og starfsteyminu í kringum landsliðið.

„Á sínum tíma lifði maður fyrir landsliðið, maður beið bara eftir því og allar ákvarðanir í lífinu, jafnvel þó að ég væri á bekknum, miðuðust að því að vera í landsliðinu. Það var eina markmiðið á sínum tíma og ég sé ekki eftir mínútu sem ég varði í landsliðið þó að ég hafi ekki verið að spila oft mikið."
„Ég lifði fyrir landsliðið"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.