Fotbolti.net
23.10.21 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Özil reiður er hann var tekinn út af - Sparkaði í vatnsbrúsa

Mesut Özil.

Mesut Özil.

Canon

Mynd: Getty Images

Mesut Özil, leikmaður Fenerbahce í Tyrklandi, sýndi pirring þegar hann var tekinn af velli gegn Royal Antwerp í Evrópudeildinni á fimmtudag.
Leikurinn endaði með 2-2 jafntefli. Özil var tekinn af velli stuttu eftir jöfnunarmarkið.

Hann brást reiður við; sparkaði í vatnsbrúsa og henti treyju sinni í jörðina.

Hinn 33 ára gamli Özil átti mjög dapran leik og ákvað þjálfari Fenerbahce að taka hann út af. „Við þurftum meiri ákefð og ferskt blóð," sagði Vitor Pereira, þjálfari tyrkneska félagsins, eftir leik.

Hér að neðan má sjá myndir af viðbrögðunum hjá þessum fyrrum leikmanni Arsenal er hann var tekinn út af; greinilega vel pirraður.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.