Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   mán 23. nóvember 2020 10:00
Magnús Már Einarsson
Fordæma skilaboð sem Pepe og Alioski hafa fengið
Leeds og Arsenal hafa bæði sent frá sér yfirlýsingar þar sem félögin fordæma skilaboð sem Ezgjan Alioski og Nicolas Pepe hafa fengið á samfélagsmiðlum.

Pepe skallaði Alioski í leik liðanna í gær og fékk beint rautt spjald fyrir vikið.

Báðir leikmenn hafa fengið send ljót skilaboð á samfélagsmiðlum eftir leikinn.

„Við fordæmum þau ljótu skilaboð sem Nicolas Pepe og Ezgjan Alioski hafa fengið á samfélagsmiðlum eftir leik okkar gegn Leeds," segir í yfirlýsingu frá Arsenal.

„Þetta er algjörlega óásættanlegt og við munum vinna með lögreglunni og yfirvöldum til að gera allt sem í okkar valdi stendur til að finna sökudólgana."
Athugasemdir
banner