Fotbolti.net
24.02.26 - 18:58
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Kjarninn

Byrjunarlið kvöldsins: Yrði eitt það óvæntasta í sögunni

Bodö/Glimt vann fyrri leik sinn gegn Inter.

Bodö/Glimt vann fyrri leik sinn gegn Inter.

Canon

Mynd: EPA

Það eru þrír leikir sem hefjast í Meistaradeildinni klukkan 20:00. Flestra augu verða væntanlega í Mílanó þar sem Bodö/Glimt mun reyna að slá út Inter, silfurlið keppninnar frá því í fyrra. Bodö hefur átt magnað mót og er með 3-1 forystu eftir fyrri leikinn.

Kasper Högh, fyrrum leikmaður Vals, hefur slegið í gegn í Meistaradeildinni á þessu tímabili og hann leiðir auðvitað línuna hjá Bodö.
Meistaraspáin - Klæbo kenndi okkur að allt er hægt
TENGT EFNI

Meistaraspáin - Klæbo kenndi okkur að allt er hægt

Það yrðu líklega einhver óvæntustu úrslit í sögu keppninnar ef Bodö nær að slá Inter út.

Byrjunarlið Inter: Sommer; Bisseck, Akanji, Bastoni; Luis Henrique, Barella, Zielinski, Frattesi, Dimarco; Thuram, Esposito.

Byrjunarlið Bodö: Haikin; Sjovold, Bjortuft, Gundersen, Bjorkan; Evjen, Berg, Brunstad Fet; Blomberg, Hogh, Hauge.




Newcastle er með 6-1 forystu gegn Qarabag frá Aserbaídsjan fyrir leik liðanna í kvöld. Newcastle gerir sjö breytingar frá 2-1 tapi gegn Manchester City síðasta laugardag.

Anthony Gordon skoraði fernu í fyrri leiknum en hann byrjar á bekknum í kvöld. Hinn 21 árs gamli Alex Murphy byrjar sinn fyrsta leik í Meistaradeildinni.

Byrjunarlið Newcastle: Ramsdale; Trippier, Botman, Burn, A.Murphy; J.Murphy, Tonali, Joelinton; Woltemade, Osula, Barnes.

Byrjunarlið Qarabag: Kochalski; Silva, Hüseynov, Medina, Jafarguliyev; Bicalho, Jankovic; Bolt, Montiel, Zoubir; Durán.




Þá mætast Bayer Leverkusen og Olympiakos í Þýskalandi, en Leverkusen er með 2-0 forystu eftir fyrri leikinn í Grikklandi. Leverkusen mætir með sterkt lið til leiks og ætlar að klára dæmið.

Byrjunarlið Bayer Leverkusen: Blaswich; Quansah, Andrich, Tapsoba; Palacios, Aleix García; Lucas Vázquez, Maza, Grimaldo, Hofmann; Schick.

Byrjunarlið Olympiakos: Tzolakis; Rodinei, Retsos, Pirola, Ortega; Mouzakitis, Dani García, Hezze; Gelson Martins, Chiquinho; Taremi.
Anthony Gordon fer á bekkinn.

Anthony Gordon fer á bekkinn.

Canon

Mynd: EPA

Jarell Quansah byrjar hjá Bayer Leverkusen.

Jarell Quansah byrjar hjá Bayer Leverkusen.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.