Man Utd gæti keypt McTominay til baka - Man Utd hrifið af Sangare - Real Madrid með augun á Van de Ven
   þri 24. febrúar 2026 15:22
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Engin breyting á dagskrá landsliðsins - Leikurinn annað kvöld
Úr leik Íslands og Mexíkó 2018.
Úr leik Íslands og Mexíkó 2018.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það hefur ríkt óvissa um hvort landsleikur Íslands og Mexíkó muni fara fram annað kvöld. Misvísandi fréttir hafa verið birtar í erlendum miðlum. Ólga hefur ríkt í landinu eftir að glæpaforinginn El Mencho var drepinn af mexíkóska hernum um helgina.

Ómar Smárason, samskiptastjóri KSÍ, segir við Fótbolta.net að engin breyting sé á dagskrá landsliðsins í dag og leikurinn fari að óbreyttu fram annað kvöld.

„Engar breytingar á dagskránni í dag eða á morgun. Æfing og fjölmiðladagskrá í dag, leikurinn annað kvöld," segir Ómar í skriflegu svari við fyrirspurn Fótbolta.net.

Leikurinn fer fram á Estadio Corregidora í Queretaro og tekur hann ríflega 34 þúsund manns í sæti. Búist er við fullum velli. Leikurinn hefst klukkan 02:00 aðfaranótt fimmtudags að íslenskum tíma. Leikurinn verður í textalýsingu hér á Fótbolti.net og í opinni dagskrá hjá SÝN Sport.
Athugasemdir
banner
banner