Man Utd gæti keypt McTominay til baka - Man Utd hrifið af Sangare - Real Madrid með augun á Van de Ven
   þri 24. febrúar 2026 11:40
Kári Snorrason
Tveir lykilmenn Njarðvíkur meiddust á hné - „Óvíst hversu slæm meiðslin eru“
Lengjudeildin
Oumar Diouck skoraði 15 mörk í Lengjudeildinni á síðasta tímabili.
Oumar Diouck skoraði 15 mörk í Lengjudeildinni á síðasta tímabili.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Tveir leikmenn Njarðvíkur, þeir Oumar Diouck og Tómas Bjarki Jónsson, meiddust báðir illa á hné í 1–0 sigri liðsins á KA um helgina.

Um er að ræða fyrirliða Njarðvíkur og markahæsta leikmann liðsins á síðasta tímabili. Samkvæmt heimildum Fótbolta.net er óttast um möguleg krossbandaslit hjá báðum leikmönnum. Tómas fer í segulómskoðun síðar í dag.

„Þeir meiddust, það er alveg óvíst hversu slæm meiðslin eru. Það kemur í ljós á næstu dögum,“ segir Davíð Smári Lamude, þjálfari Njarðvíkur, í samtali við Fótbolta.net.

Er óttast um krossbandaslit? „Ekkert frekar, maður er alltaf stressaður þegar það er hné. Þetta ætti að koma í ljós fyrir helgi.“

Leikurinn fór fram í Nettóhöllinni en fyrr í vetur sleit Viktor Elmar Gautason, leikmaður Keflavíkur, krossbönd á sama velli.
Athugasemdir
banner
banner
banner