Fotbolti.net
24.02.26 - 18:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Liverpool að missa þolinmæðina gagnvart Konate

Ibrahima Konate.

Ibrahima Konate.

Canon

Mynd: EPA

Ibrahima Konate, varnarmaður Liverpool, er að verða samningslaus og enn virðist ekkert bóla á því að hann muni skrifa undir nýjan samning við Englandsmeistarana.

Hann var fyrir nokkrum mánuðum sterklega orðaður við Real Madrid en spænska stórveldið mun ekki reyna við hann í sumar.
TeamTalk segir nú að Liverpool sé að missa þolinmæðina gagnvart Konate sem er með miklar kröfur. Liverpool hefur gefið frest fram að páskum til að ná samkomulagi við Konate um nýjan samning - annars mun hann kveðja félagið í sumar.

Fram kemur í ítölskum fjölmiðlum að Inter Milan sé að fylgjast með stöðu mála hjá Konate og gæti hann farið þangað ef hann nær ekki samkomulagi við Liverpool um nýjan samning.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.