Fotbolti.net
24.02.26 - 20:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Jói útherji

Mbappe fjarri góðu gamni

Kylian Mbappe.

Kylian Mbappe.

Canon

Mynd: EPA

Kylian Mbappe verður fjarri góðu gamni þegar Real Madrid mætir Benfica í umspili um sæti í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar á morgun.

Þetta herma heimildir franska íþróttablaðsins L'Equipe.
Í grein miðilsins segir að Mbappe hafi meiðst á vinstra hné og muni missa af næstu leikjum Madrídarstórveldisins.

Þetta er högg fyrir Real Madrid sem er 1-0 yfir eftir fyrri leik liðanna í Portúgal.

Mbappe hefur á þessu tímabili skorað 38 mörk í 33 leikjum fyrir Real Madrid.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.