Rodri eftirsóttur - Liverpool vill tyrkneskan varnarmann - Julian Alvarez aftur til Englands? - Man Utd og Arsenal berjast um varnarmann
   þri 24. febrúar 2026 05:55
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Meistaradeildin í dag - Bodö/Glimt í góðri stöðu gegn Inter
Kasper Högh
Kasper Högh
Mynd: EPA
Fjögur lið í viðbót tryggja sér farseðilinn í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar í kvöld en átta lið eru þegar kominn áfram eftir árangur liðanna í deildarkeppninni.

Atletico Madrid fær Club Brugge í heimsókn í fyrsta leik kvöldsins. Þar er allt jafnt eftir markaveislu í Belgíu.

Óvæntustu úrslit fyrri leikjanna var án efa 3-1 sigur Bodö/Glimt á heimavelli gegn Inter þar sem Kasper Högh, fyrrum leikmaður Vals, kom að öllum mörkum Bodö/Glimt. Það er hins vegar ljóst að þessi viðureign er langt frá því að vera búinn.

Það er hins vegar alveg hægt að bóka það að Newcastle er komið áfram eftir stórsigur á Qarabag í fyrri leik liðanna. Þá fær Leverkusen Olympiakos í heimsókn en Leverkusen er í fínni stöðu.

þriðjudagur 24. febrúar

Meistaradeildin
17:45 Atletico Madrid - Club Brugge (3-3)
20:00 Leverkusen - Olympiakos (2-0)
20:00 Inter - Bodö/Glimt (1-3)
20:00 Newcastle - Qarabag (6-1)
Athugasemdir
banner
banner