Man Utd gæti keypt McTominay til baka - Man Utd hrifið af Sangare - Real Madrid með augun á Van de Ven
   þri 24. febrúar 2026 19:40
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Meistaradeildin: Sörloth með þrennu og Mignolet mjög slakur
Alexander Sörloth.
Alexander Sörloth.
Mynd: EPA
Atletico Madrid 4 - 1 Club Brugge
1-0 Alexander Sorloth ('23 )
1-1 Joel Ordonez ('36 )
2-1 Johnny Cardoso ('48 )
3-1 Alexander Sorloth ('76 )
4-1 Alexander Sorloth ('87 )

Norski sóknarmaðurinn Alexander Sörloth gerði þrennu þegar Atletico Madrid tryggði sig inn í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar gegn Club Brugge núna rétt áðan.

Liðin gerðu 3-3 jafntefli í Belgíu og því var allt opið fyrir leik kvöldsins. Simon Mignolet, markvörður Club Brugge, gerði slæm mistök þegar Sörloth kom Atletico yfir á 23. mínútu. Sörloth átti þá skot sem fór undir Mignolet og inn.

Club Brugge tókst að jafna fyrir hlé en Atletico tók forystuna aftur snemma í seinni. Mignolet vildi þá líka örugglega gera betur í því marki en Johnny Cardoso skoraði með skoti fyrir utan teig.

Sörloth gekk svo frá einvíginu seint í leiknum með tveimur mörkum til viðbótar. Atletico voru frábærir í því að sækja hratt í kvöld og fljúga inn í 16-liða úrslitin.

Seinna í kvöld komst þrjú lið til viðbótar í næstu umferð keppninnar.
Athugasemdir
banner
banner