Fotbolti.net
24.02.26 - 20:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Segir Aston Villa hafa sloppið með skrekkinn

Conor Gallagher.

Conor Gallagher.

Canon

Mynd: Tottenham

Tottenham keypti Conor Gallagher frá Atletico Madrid fyrir 35 milljónir punda í janúar.

Aston Villa barðist um Gallagher við Tottenham en hann valdi Lundúnafélagið. Gallagher er með 200 þúsund pund í vikulaun hjá Tottenham og er launahæsti leikmaður félagsins.
Gabriel Agbonlahor, goðsögn hjá Aston Villa, telur að sitt gamla félag hafi sloppið með skrekkinn með því að kaupa ekki Gallagher - hann hafi verið það slakur með Tottenham upp á síðkastið.

„Við sluppum með skrekkinn með Conor Gallagher," skrifaði Agbonlahor á X.

„Hann lítur út eins og slakari útgáfan af Brett Emerton, er skugginn af sjálfum sér."

Emerton, sem þarna var skotið á, var á sínum tíma leikmaður Blackburn Rovers.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.