24.06.15 - 19:05
Arnar Geir Halldórsson
Radja Nainggolan í Roma (Staðfest)

Radja Nainggolan verður í Róm næstu árin

Mynd: Getty Images

Ítalska stórliðið AS Roma hefur loks staðfest kaup sín á belgíska miðjumanninum Radja Nainggolan.
Roma átti fyrir helming í Nainggolan og hefur nú keypt hinn helminginn sem var í eigu Cagliari en Nainggolan lék í fjögur ár með Cagliari. Hann hefur eytt síðastliðnu einu og hálfu ári hjá Roma og er nú alfarið í eigu félagsins ef svo má segja.
Nainggolan hefur vakið athygli stórra liða víða um Evrópu eftir gott tímabil og var meðal annars orðaður við Man Utd og Liverpool.
Í tilkynningu frá Roma segir að félagið borgi níu milljónir evra fyrir Belgann sem á 12 landsleiki að baki fyrir geysisterkt landslið Belgíu.
Roma lenti í 2.sæti Serie A á síðustu leiktíð og mun því leika í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu á næsta tímabili.

Heimild: AS Roma