24.08.26 - 15:05
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Stjarnan í fínum séns á sæti í efri hlutanum eftir allt saman

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stjarnan á góðan möguleika á því að enda í efri hluta Bestu deildarinnar þrátt fyrir afskaplega stormasamt tímabil. Tveir þjálfarar hafa verið látnir taka pokann sinn á tímabilinu, fyrst var Jökull Elísabetarson látinn fara og svo Jón Þór Hauksson.
Með því að sigra Þór í gær, 4-2 lokatölur, hefur Stjarnan unnið þrjá af síðustu fjórum leikjum sínum og er einungis tveimur stigum frá sæti í efri hlutanum þegar tvær umferðir eru eftir fram að tvískiptum.

ÍA er í sætinu fyrir ofan og tveimur stigum fyrir ofan ÍA er Keflavík. Bæði ÍA og Keflavík eru með talsvert betri markatölu en Stjarnan.
Stjarnan á eftir að mæta grönnunum í Breiðabliki í næsta leik og lokaleikurinn fyrir tvískiptingu verður heimaleikur gegn ÍBV, en Eyjamenn hafa verið í frjálsu falli að undanförnu.
ÍA á eftir útileik gegn Val sem á einnig möguleika á sæti í efri hlutanum og svo heimaleik gegn KR sem er í 2. sæti deildarinnar.
Keflavík á eftir að mæta FH á útivelli og Val á heimavelli.
Leikirnir sem eftir eru hjá liðunum í 5.-8. sæti
sunnudagur 30. ágúst
17:00 FH-Keflavík (Kaplakrikavöllur)
19:15 Valur-ÍA (N1-völlurinn Hlíðarenda)
mánudagur 31. ágúst
19:15 Breiðablik-Stjarnan (Eikarvöllurinn)
sunnudagur 6. september
14:00 Stjarnan-ÍBV (Samsungvöllurinn)
14:00 Keflavík-Valur (HS Orku völlurinn)
14:00 ÍA-KR (ELKEM völlurinn)