Fotbolti.net
24.10.20 - 21:36
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Ítalía: Lazio marði Bologna - Andri Fannar fyrstur inn af bekknum

Andri Fannar í baráttu við Vedat Muriqi framherja Lazio.

Andri Fannar í baráttu við Vedat Muriqi framherja Lazio.

Canon

Mynd: Getty Images

Lazio 2 - 1 Bologna
1-0 Luis Alberto ('54)
2-0 Ciro Immobile ('76)
2-1 Lorenzo De Silvestri ('91)
Lazio hefur farið illa af stað á nýju tímabili í ítalska boltanum en liðið gerði þó frábærlega að leggja Borussia Dortmund að velli í Meistaradeildinni í miðri viku.

Í kvöld tók Lazio á móti lærisveinum Sinisa Mihajlovic í Bologna og úr varð hörkuleikur þar sem gestirnir voru betri stærsta hluta leiksins. Andri Fannar Baldursson kom inn á 72. mínútu og fékk því að spila síðustu 20 mínútur leiksins.

Þetta var fyrsti leikur Andra Fannars á nýju deildartímabili en hann kom við sögu í sjö leikjum á síðustu leiktíð.

Andri Fannar er aðeins 18 ára gamall en hann er uppalinn hjá Breiðabliki og á einn leik að baki með meistaraflokki í Pepsi-deildinni sumarið 2018, aðeins 16 ára gamall.

Luis Alberto kom Lazio yfir eftir skyndisókn snemma í síðari hálfleik og tvöfaldaði Ciro Immobile forystuna tuttugu mínútum síðar. Markavélin skoraði með skalla eftir skemmtilega fyrirgjöf frá Mohamed Fares, sem tók bakfallsspyrnu til að koma knettinum aftur inn í vítateiginn.

Bologna vantaði gæðin á síðasta þriðjungnum og þá átti Pepe Reina stórleik á milli stanga Lazio en hann fékk tækifæri á meðan Thomas Strakosha var hvíldur.

Lorenzo De Silvestri náði að skora fyrir gestina í uppbótartíma en það nægði ekki og 2-1 sigur Lazio staðreynd. Lazio er með sjö stig eftir fimm umferðir á meðan Bologna er aðeins með þrjú stig.
Ítalía: Lazio marði Bologna - Andri Fannar fyrstur inn af bekknum
Canon

Mynd: Getty Images

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Lazio10+1628
2Inter10+1325
3Roma10+1824
4Como10+1023
5Milan10+921
6Frosinone10+1020
7Juventus10+317
8Napoli10+414
9Bologna10+114
10Torino10-213
11Genoa10-413
12Cagliari10-613
13Atalanta10-411
14Lecce10-109
15Parma10-78
16Fiorentina10-88
17Sassuolo10-108
18Monza10-77
19Udinese10-125
20Venezia10-143
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.