Byrjunarlið Stjörnunnar og Vals: Hólmar aðstoðarþjálfari í kveðjuleiknum


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stjarnan og Valur mætast í lokaumferð Bestu deildar á Samsungvellinum og hefst kl. 14. Liðin keppast um Forsetabikarinn en þarf Stjarnan að vinna með 7 mörkum til komast yfir Val.
Þjálfarar Stjörnunnar gera alls þrjár breytingar eftir 3-1 tapi gegn Þór í seinustu umferð. Ibrahim Turay, Benedikt Waren og Arnar Breki koma allar inn í byrjunarliðið fyrir Gustav Kjeldsen, Sigurð Gunnar og Alex Þór. Áhugavert er að sjá að Guðmundur Kristjáns er á bekknum í lokaleik ferilsins. Hann tekur mögulega nokkrar mínútur í sínum loka leik.
Chris Brazell gerir einungis eina breytingu eftir 4-1 sigur gegn KA í seinustu umferð. Hörður Ingi kemur inná fyrir Hólmar Örn sem stendur á hliðarlínunni sem aðstoðaþjálfari í sínum kveðjuleik.
Byrjunarlið Stjarnan
- 12. Árni Snær Ólafsson (m)
- 7. Örvar Eggertsson
- 8. Jóhann Árni Gunnarsson
- 11. Birnir Snær Ingason
- 14. Bjarki Hauksson
- 18. Guðmundur Baldvin Nökkvason (f)
- 19. Ari Leifsson
- 21. Ibrahim Turay
- 23. Benedikt V. Warén
- 32. Örvar Logi Örvarsson
- 36. Arnar Breki Björnsson
Byrjunarlið Valur
- 25. Stefán Þór Ágústsson (m)
- 3. Hörður Ingi Gunnarsson
- 4. Markus Lund Nakkim
- 5. Kristófer Dagur Arnarsson
- 7. Samúel Kári Friðjónsson (f)
- 12. Tryggvi Hrafn Haraldsson
- 17. Lúkas Logi Heimisson
- 19. Dagur Orri Garðarsson
- 21. Jakob Franz Pálsson
- 24. Myles A Veldman
- 29. Shkelzen Veseli
