Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
banner
   mán 25. janúar 2021 22:47
Brynjar Ingi Erluson
Papu Gomez á leið til Sevilla
Papu Gomez fer til Sevilla
Papu Gomez fer til Sevilla
Mynd: Getty Images
Alejandro Gomez, leikmaður Atalanta, er að ganga til liðs við Sevilla á Spáni en ítalski íþróttafréttamaðurinn Fabrizio Romano fullyrðir þetta á Twitter.

Gomez hefur ekki verið í myndinni hjá Atalanta síðan í desember eftir að hann reifst við Gian Piero Gasperini, þjálfara liðsins.

Argentínski sóknarmaðurinn hefur verið einn besti leikmaður Atalanta síðustu ár og var fyrirliði liðsins áður en uppákoman átti sér stað eftir leikinn gegn Midtjylland.

Samkvæmt Fabrizio Romano þá hefur Sevilla komist að samkomulagi við Atalanta um að kaupa Gomez á 8,5 milljónir evra. Hann mun gera þriggja og hálfs árs samning við spænska félagið.

Gomez er á leið til Spánar þar sem hann fer í læknisskoðun áður en hann skrifar undir samning við Sevilla.

Þessi 32 ára gamli leikmaður kom til Atalanta frá Metalist árið 2014 en hann hefur skorað 59 mörk og lagt upp 71 mark í 252 leikjum fyrir ítalska félagið.
Athugasemdir
banner
banner