Fotbolti.net
25.02.21 - 16:30
Elvar Geir Magnússon

Lamptey að snúa aftur

Tariq Lamptey.

Tariq Lamptey.

Canon

Mynd: Getty Images

Tariq Lamptey, lykilmaður Brighton & Hove Albion, hefur getað æft í vikunni og eru það svo sannarlega gleðitíðindi fyrir liðið að hann sé að snúa aftur.

<i>„Hann æfði aftur í dag og það eru engin vandræði. Þetta hefur verið góð vika fyrir hann,"</i> segir Graham Potter, stjóri Brighton.

<i>„Hnn mun ekki vera í byrjunarliðinu en það er möguleiki á að hann verði í hópnum gegn West Brom."</i>
Þessi tvítugi leikmaður fór frábærlega af stað á tímabilinu en hefur ekki getað spilað síðan 16. desember vegna meiðsla aftan í læri.

Brighton er sem stendur í 16. sæti ensku úrvalsdeildarinnar, fjórum stigum frá fallsæti.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.