Fotbolti.net
25.02.26 - 16:58
Elvar Geir Magnússon

Dortmund gagnrýnir ítölsk yfirvöld

Stuðningsmenn Borussia Dortmund, gulir og glaðir.

Stuðningsmenn Borussia Dortmund, gulir og glaðir.

Canon

Mynd: EPA

Þýska félagið Borussia Dortmund hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem það gagnrýnir hvernig ítölsk yfirvöld hafa meðhöndlað suma stuðningsmenn liðsins.

Einhverjir stuðningsmenn Dortmund sem ætluðu á leikinn gegn Atalanta í Meistaradeildinni munu missa af honum. Sumum þeirra var neitað um inngöngu inn í Ítalíu og aðrir fengu lögregluheimsókn á dvalarstaði sína.
Meistaradeildin í dag - Verða læti á Bernabeu?
TENGT EFNI

Meistaradeildin í dag - Verða læti á Bernabeu?

„Félaginu var ekki tilkynnt fyrirfram um þessar óhóflegu aðgerðir. Það lýsir yfir furðu sinni á þeim lögregluaðgerðum sem hafa verið framkvæmdar. Aldrei hefur áður verið gripið til svona umfangmikilla aðgerða í tengslum við leiki Borussia Dortmund erlendis,“ segir í yfirlýsingu Dortmund.

Félagið segir að aðgerðirnar séu óskiljanlegar og setur spurningamerki við hegðun ítalskra yfirvalda.

Dortmund vann fyrri leikinn á heimavelli 2-0. Sigurliðið mun mæta Arsenal eða Bayern München í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.