Gibbs-White, Anderson, Onana og Nmecha á blaði Man Utd - Diomande orðaður við ensku úrvalsdeildina - Cambiaso eftirsóttur
   mið 25. febrúar 2026 09:18
Elvar Geir Magnússon
Gibbs-White, Anderson, Onana og Nmecha á blaði Man Utd
Powerade
Amadou Onana.
Amadou Onana.
Mynd: EPA
Felix Nmecha.
Felix Nmecha.
Mynd: EPA
Marcos Senesi.
Marcos Senesi.
Mynd: EPA
Manchester United og Manchester City hafa áhuga á miðjumönnum Nottingham Forest, leikmenn í þýsku deildinni eru orðaðir við ensku úrvalsdeildina og Andrea Cambiaso einnig. Þetta og fleira í slúðurpakka dagsins.

Manchester United hefur áhuga á ensku miðjumönnunum Morgan Gibbs-White (26) og Elliot Anderson (23) sem eru báðir hjá Nottingham Forest. Manchester City er einnig með báða leikmenn undir sinni smásjá. (Mail)

Amadou Onana (24), hinn stóri og stæðilegi miðjumaður Aston Villa, er einn af þeim sem eru á blaði hjá Manchester United. (Football Insider)

Manchester United og Chelsea vilja þýska miðjumanninn Felix Nmecha (25) en Borussia Dortmund mun biðja um í kringum 60 milljónir punda fyrir hann. (Bild)

Vængmaðurinn Yan Diomande (19) hjá RB Leipzig er á blöðum Liverpool, Manchester United og Tottenham. Það flækir hinsvegar málin að deilur eru í gangi um hver sé raunverulegur umboðsmaður hans. (Telegraph)

Manchester City, Liverpool og Real Madrid fylgjast grannt með ítalska bakverðinum Andrea Cambiaso (26) hjá Juventus. (Caughtoffside)

Barcelona ætlar að reyna að fá Manchester United til að selja Marcus Rashford (28) á lægri upphæð en 26 milljóna punda ákvæði í samningi. (Sport)

Rashford er ánægður hjá Barcelona og hefur enga löngun til þess að snúa aftur til Manchester United. Hann vill þó stækka hlutverk sitt í byrjunarliði Börsunga. (Marca)

Möguleiki á að kaupa skoska miðjumanninn Scott McTominay (29) aftur frá Napoli hefur ekki verið ræddur hjá Manchester United. (TeamTalk)

Líklegast er að argentínski miðvörðurinn Marcos Senesi (28) fari frá Bournemouth til Barcelona á frjálsri sölu í sumar. (Football Insider)

Arsenal undirbýr að kaupa ekvadorska miðvörðinn Piero Hincapie (24), sem er á láni frá Bayer Leverkusen, fyrir 45 milljónir punda. (TeamTalk)

Juventus hefur hafið viðræður við ítalska markvörðinn Guglielmo Vicario (29) hjá Tottenham en ítalska félagið hefur einnig áhuga á Alisson (33) hjá Liverpool. (Gazzetta)

Aston Villa gæti verið tilbúið að selja enska miðjumanninn Morgan Rogers (23) fyrir 100 milljónir punda í sumar. (GiveMeSport)

Bournemouth telur auknar líkur á að félagið geti sannfært stjórann Andoni Iraola um að gera nýjan samning við félagið. (TeamTalk)

Newcastle United hefur engar áætlanir um að selja Anthony Gordon (25) í sumar. (TalkSport)

Celtic í Glasgow er tilbúið að hlusta á stór tilboð í sænska miðjumanninn Benjamin Nygren (24) í sumar en félög í ensku úrvalsdeildinni hafa áhuga á honum. (Football Insider)
Athugasemdir
banner
banner