Gibbs-White, Anderson, Onana og Nmecha á blaði Man Utd - Diomande orðaður við ensku úrvalsdeildina - Cambiaso eftirsóttur
banner
fimmtudagur 26. febrúar
Vináttulandsleikur
miðvikudagur 25. febrúar
Úrslitaleikur Reykjavíkurmótsins
miðvikudagur 18. febrúar
Evrópubikarinn - 8-liða úrslit
laugardagur 14. febrúar
Lengjubikar karla - A-deild, riðill 1
miðvikudagur 11. febrúar
Evrópubikarinn - 8-liða úrslit
fimmtudagur 18. desember
Sambandsdeildin
fimmtudagur 27. nóvember
miðvikudagur 19. nóvember
Evrópubikarinn - 16-liða úrslit
sunnudagur 16. nóvember
Undankeppni HM
fimmtudagur 13. nóvember
Undankeppni EM U21
Undankeppni HM
miðvikudagur 12. nóvember
Evrópubikarinn - 16-liða úrslit
fimmtudagur 6. nóvember
Sambandsdeildin
miðvikudagur 29. október
Þjóðadeild kvenna - Umspil
sunnudagur 26. október
Besta-deild karla - Efri hluti
föstudagur 24. október
Þjóðadeild kvenna - Umspil
fimmtudagur 23. október
Sambandsdeildin
miðvikudagur 22. október
Evrópukeppni unglingaliða
mánudagur 20. október
Besta-deild karla - Efri hluti
miðvikudagur 15. október
Evrópubikar kvenna
þriðjudagur 14. október
Undankeppni EM U21
mánudagur 13. október
Undankeppni HM
laugardagur 11. október
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
Besta-deild kvenna - Efri hluti
föstudagur 10. október
Undankeppni HM
Undankeppni EM U21
fimmtudagur 9. október
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
miðvikudagur 8. október
Evrópubikar kvenna
mánudagur 6. október
Besta-deild kvenna - Efri hluti
sunnudagur 5. október
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
Besta-deild kvenna - Efri hluti
laugardagur 4. október
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
föstudagur 3. október
Besta-deild kvenna - Efri hluti
fimmtudagur 2. október
Sambandsdeildin
miðvikudagur 1. október
Besta-deild kvenna - Efri hluti
Evrópukeppni unglingaliða
þriðjudagur 30. september
Besta-deild kvenna - Efri hluti
mánudagur 29. september
Besta-deild karla - Efri hluti
sunnudagur 28. september
Besta-deild karla - Neðri hluti
laugardagur 27. september
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
Lengjudeild karla - Umspil
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
föstudagur 26. september
Fótbolti.net bikarinn
mánudagur 22. september
Besta-deild karla - Efri hluti
miðvikudagur 17. september
Lengjudeild karla - Umspil
mánudagur 15. september
Besta-deild karla
laugardagur 13. september
Lengjudeild karla
miðvikudagur 25. febrúar
Championship
Stoke City - Oxford United - 20:00
Millwall 0 - 0 Birmingham
Norwich 0 - 0 Sheff Wed
Sheffield Utd 0 - 0 Coventry
Meistaradeildin
Atalanta 4 - 1 Dortmund
Juventus - Galatasaray - 20:00
PSG - Mónakó - 20:00
Real Madrid - Benfica - 20:00
Vináttuleikur
Mexíkó - Ísland - 02:00
mið 25.feb 2026 17:49 Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Magazine image

Leit á samtal við framkvæmdastjórann sem óformlega uppsögn

„Ég og hundurinn byrjum hjá tengdó í Laugardalnum og verð þar eitthvað til að byrja með. Konan er að vinna upp uppsagnarfrest og við erum að bíða eftir leikskólaplássi fyrir strákinn, þau verða á Akureyri eitthvað áfram og kom svo hægt og rólega suður," segir Ívar Örn Árnason sem gekk í raðir Breiðabliks fyrr í þessum mánuði. Breiðablik keypti varnarmanninn af uppeldisfélaginu, KA.

'Breiðablik hefur einhvern veginn alltaf verið að forvitnast.'
'Breiðablik hefur einhvern veginn alltaf verið að forvitnast.'
Mynd/Breiðablik
'Ég væri ekkert að fara hingað ef markmiðið væri bara topp sex'
'Ég væri ekkert að fara hingað ef markmiðið væri bara topp sex'
Mynd/Breiðablik
'Ég er ánægður og sáttur með að Breiðablik og KA gengu sátt frá borði'
'Ég er ánægður og sáttur með að Breiðablik og KA gengu sátt frá borði'
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
'Það er markmið margra liða að verða Íslandsmeistari, og þar á meðal er Breiðablik'
'Það er markmið margra liða að verða Íslandsmeistari, og þar á meðal er Breiðablik'
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
'Ég á alltaf jafn erfitt með að kyngja því.'
'Ég á alltaf jafn erfitt með að kyngja því.'
Mynd/Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Skrifaði undir hjá Breiðabliki fyrir rúmri viku síðan.
Skrifaði undir hjá Breiðabliki fyrir rúmri viku síðan.
Mynd/Breiðablik
'Ég er með svakalega mikla þrautseigju og ég er þrjóskari en andskotinn'
'Ég er með svakalega mikla þrautseigju og ég er þrjóskari en andskotinn'
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Í leik með KA 2016.
Í leik með KA 2016.
Mynd/Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Lék á láni með Víkingi Ólafsvík og Magna 2018/19.
Lék á láni með Víkingi Ólafsvík og Magna 2018/19.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Varð lykilmaður 2022.
Varð lykilmaður 2022.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Með fyrirliðabandið gegn Club Brugge í ágúst 2023.
Með fyrirliðabandið gegn Club Brugge í ágúst 2023.
Mynd/Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
'Fótbolti er ekki þannig að það eru alltaf allar dyr opnar, það er ekki þannig að það er bara einhver flugbraut fyrir framan þig og þú þarft bara að spila vel hér til að komast áfram. Þetta er alltaf ströggl, þú mætir mörgum lokuðum dyrum'
'Fótbolti er ekki þannig að það eru alltaf allar dyr opnar, það er ekki þannig að það er bara einhver flugbraut fyrir framan þig og þú þarft bara að spila vel hér til að komast áfram. Þetta er alltaf ströggl, þú mætir mörgum lokuðum dyrum'
Mynd/Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
'Ég er búinn að þurfa að ströggla svakalega mikið hjá KA og búinn að þurfa berjast fyrir hverri einustu mínútu sem ég hef fengið að spila.'
'Ég er búinn að þurfa að ströggla svakalega mikið hjá KA og búinn að þurfa berjast fyrir hverri einustu mínútu sem ég hef fengið að spila.'
Mynd/Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Bikarmeistarar 2024.
Bikarmeistarar 2024.
Mynd/Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
'Maður þarf að mæta á það level og taka þátt í því, í staðinn fyrir að draga þá eitthvað niður'
'Maður þarf að mæta á það level og taka þátt í því, í staðinn fyrir að draga þá eitthvað niður'
Mynd/Breiðablik
Hallgrímur Mar er dæmi um annan leikmann sem blómstraði þegar leið á ferilinn.
Hallgrímur Mar er dæmi um annan leikmann sem blómstraði þegar leið á ferilinn.
Mynd/Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
'Sævar þarf kannski að fara læra dreifa álaginu'
'Sævar þarf kannski að fara læra dreifa álaginu'
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
'Ég myndi segja að ég sé ofboðslega stoltur af mínum tíma og ég vona innilega að leikmenn sem eru kannski ekki í byrjunarliðinu í 2. eða 3. flokki eða eru að taka skrefið upp í meistaraflokkinn og eru að lenda svolítið á veggjum átti sig á því að að er enginn heimsendir.'
'Ég myndi segja að ég sé ofboðslega stoltur af mínum tíma og ég vona innilega að leikmenn sem eru kannski ekki í byrjunarliðinu í 2. eða 3. flokki eða eru að taka skrefið upp í meistaraflokkinn og eru að lenda svolítið á veggjum átti sig á því að að er enginn heimsendir.'
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Úr leiknum gegn Silkeborg í sumar.
Úr leiknum gegn Silkeborg í sumar.
Mynd/Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
'Menn vilja setja kröfu á að vera með gæðaleikmenn og þá er það bara ákveðin biðröð, menn eru að bíða eftir gluggum hér og þar áður en þeir koma til Íslands. KA er engin undantekning á því'
'Menn vilja setja kröfu á að vera með gæðaleikmenn og þá er það bara ákveðin biðröð, menn eru að bíða eftir gluggum hér og þar áður en þeir koma til Íslands. KA er engin undantekning á því'
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég er með svakalega mikla þrautseigju og ég er þrjóskari en andskotinn"
„Það er æðislegt að vera orðinn leikmaður Breiðabliks, en mjög skrítið. Það er mjög skrítið að labba allt í einu í nýjar aðstæður; nýjan klefa og það eru ný smetti sem taka á móti manni þegar maður mætir á æfingu. Þetta er smá skrítið og búið að taka smá tíma að venjast þessu - ég er ekki orðinn alveg vanur þessu ennþá. Þetta er geggjað, mér hefur aldrei liðið eins mótiveruðum sjálfum, frábært teymi í kringum þetta lið - töluvert stærra batterí en ég er vanur. Mér líður rosalega vel með þetta."

Hugsar betur um sig
Af hverju heldur þú að þú sért svona mótiveraður?

„Ég veit það ekki. Fyrir norðan var ég að vinna, mætti á æfingar seinni partinn og var þreyttur. Núna líður mér eins og ég sé orkumeiri. í þokkabót er ég núna barns- og konulaus, ég er ekki að sinna þeim skyldum akkúrat núna. Ég fæ að sofa út, mæti vel fyrir æfingar, rúlla mér og hugsa betur um mig en ég hef gert áður. Það er margt sem spilar inn í. Svo er það pressan frá Breiðabliki, það er búið að setja standardinn hátt og vilja verða Íslandsmeistarar. Maður þarf að mæta á það level og taka þátt í því, í staðinn fyrir að draga þá eitthvað niður."

Klefi er bara klefi
Hvernig var að stíga inn í hópinn hjá Blikunum?

„Ég var nokkuð fljótur að komast inn í hann, þetta eru margir strákar sem eru á svipuðum stað og ég í lífinu; komnir með börn og búnir að settla, það í bland við svo unga og graða leikmenn. Það er góð jafna í hópnum akkúrat núna. Klefi er bara klefi, það eru allir léttir og allir vinir. Ég held að maður geti labbað inn í hvaða klefa sem er og fúnkerað, maður leitar til 1-2 leikmanna til að byrja með á meðan maður er aðeins að koma sér fyrir. Maður kannski skilur ekki allt í öllum æfingum sem settar eru upp og ég hef leitað til þeirra sem eru í kringum mig. Ég er við hliðina á Kidda Steindórs í klefanum, hef mikið verið að spyrja hann. Maður leitar svo í þann sem er næst sér á æfingum og spyr, í stað þess að standa eins og einhver keila úti á velli."

Langaði ekki að vakna einn daginn með einhverja eftirsjá
Þjálfari KA, Hallgrímur Jónasson, sagði að Ívar hefði viljað fara frá KA. Af hverju ertu orðinn leikmaður Breiðabliks? Af hverju vildir þú fara?

„Eftir að hafa sett sjálfan mig í fyrsta sæti og höfuðið í bleyti komst ég að þessari niðurstöðu. Ég hugsaði alveg að það hefði verið æðislegt að spila allan ferilinn fyrir norðan og verða goðsögn þar. En þá kom upp ef og hefði hugsunin. Ef ég færi aldrei suður, þá myndi ég ekki vita hvaða hæðum ég hefði mögulega getað náð. Gæti ég orðið Íslandsmeistari? Mig langaði að sjá hvort ég gæti farið út í djúpu laugina og synt. Mig langaði ekki að vakna einn daginn með einhverja eftirsjá. Mig langaði að keyra á þetta. Breiðablik og KA gátu fundið frábæra lausn þar sem alir gátu gengið sáttir frá borði. Ég vildi ekki skilja neitt slæmt eftir mig fyrir norðan, ég hef enga slæma hluti um einn eða neinn fyrir norðan að segja. Ég kom bara hreint og beint fram við KA og þetta var allt gert mjög heiðarlega og uppi á borði."

„Ástæðan er líka stöðugleikinn hjá Breiðabliki, þeir hafa einhvern veginn alltaf verið að dúkka upp, gera tilboð, verið að ræða við umboðsmanninn og spyrja um hitt og þetta; hvort forsendur væru að breytast. Breiðablik hefur einhvern veginn alltaf verið að forvitnast. Þeir vissu að ég á kærustu sem er frá Reykjavík og það var alltaf hugur í okkur að leita suður einn daginn. Hvort að þetta hafi verið besti tímapunkturinn til þess, ég stórefast það, það hefði verið frábært fyrir fimm mánuðum því þá hefði ég getað tekið konu og barn með mér suður. Núna er konan byrjuð að vinna, barnið komið á leikskóla og boltinn byrjaður að rúlla. Það er svolítið erfitt að rífa allt upp með rótum. Það eru ekki allir svona lúxusspilarar eins og fótboltamenn, ef þeir skrifa undir annar staðar þá þarf vinnuveitandinn að gjöra svo vel og kyngja því, leikmaðurinn þarf að mæta á æfingu annars staðar daginn eftir. Það er stöðugleikinn í Breiðabliki og þetta er topp 2 klúbbur á Íslandi."


Eins og stórt fyrirtæki
Þegar þú komst til Breiðabliks, kom þér eitthvað á óvart í umgjörðinni?

„Stærðin á öllu batteríinu. Ég labbaði í gegnum allt svæðið með Eyjólfi fyrsta daginn, hann kynnti mig fyrir öllu. Ég rataði ekki upp né niður inn á Kópavogsvelli og í félagsheimilinu við Fífuna. Þegar ég labbaði inn á skrifstofuna, þar sem allar deildirnar eru með sína aðstöðu, þetta er eins og skrifstofa í stóru fyrirtæki. Það er það sem Breiðablik er orðið í dag, fyrirtæki með mikla veltu og miklar kröfur. Þetta er allt stærra. Það var pínu sjokk, en ég var líka búinn að búa mig undir það að þetta yrði allt miklu stærra."

„Við erum að æfa í hádeginu og ég er að fara upplifa það allt í einu núna að eiga seinni parta með barninu mínu, get verið aktífur partur af uppeldi sem er búið að bitna svolítið mikið á konunni minni. Ég er búinn að vera vinna til fimm, fer svo beint á æfingu og heim um sjö. Ég hef fengið að heilsa barninu þegar það vaknar og segja góða nótt þegar það fer að sofa. Þegar þau verða komin suður, búin að fjárfesta fyrir sunnan og við komin í rútínu, þá verður þetta aðeins betur smurð vél heldur en þetta var fyrir norðan, þar sem þetta var svolítið mikið að bitna á konunni."


Hollt fyrir alla að það séu háar kröfur
Kröfuhart umhverfi; krafa á árangur, heldur þú að það geri þér gott sem leikmanni?

„Klárlega. Ég held það sé hollt fyrir alla að það séu settar háar kröfur. Það eru háar kröfur á hverri einustu æfingu, eftir hverja æfingu eru birtar GPS tölur og sést hverjir voru að halda aftur af sér. Ég held það sé hollt að það séu heilbrigðar kröfur á bæði liðið og hvern og einn einstakling - hvernig svo sem það er."

„Ég er ekki að segja að það séu engar kröfur fyrir norðan, alls ekki, en það eru öðruvísi forsendur á þeim kröfum. Það er frekar erfitt að setja kröfu á Íslandsmeistaratitil á Akureyri þegar þú ert að fá 2-3 leikmenn þegar það er korter í mót, snjóþungur vetur, erfitt að æfa úti og þú þarft að vera svolítið mikið inni í þurrum Boganum. Það er bara aðeins öðruvísi."


Átti samtal við KA fyrir rúmu ári síðan um framhaldið
Ívar segir að Breiðablik hafi nokkuð stöðugt sýnt honum áhuga. Fyrir rúmu ári síðan fjallaði Fótbolti.net um að KA hefði fengið tilboð frá Blikum í Ívar. Var erfitt eða leiðinlegt þegar því tilboði var hafnað?

„Nei, ekki þannig lagað. Ég sagði við KA þegar ég fékk fréttir af áhuga og tilboði að ég væri rosalega mikið til í það að prófa þetta: „Ef þið getið fundið lausn með þeim, þá væri það æðislegt." KA kom bara hreint og beint fram og sögðust ætla sjá hvort þeir gætu fundið einhverja lausn. Sævar (Pétursson, framkvæmdastjóri KA) sagðist hafa boðið í einhverja tvo leikmenn sem honum fannst alltof dýrir miðað við hitt og þetta, það væri ekki hægt að fá inn mann í staðinn fyrir mig og ég spurður hvernig mér litist á það. Ég sagðist vera maður orða minna, væri skuldbundinn KA og það væri engin heimsendir fyrir mig að vera hjá félaginu í eitt ár í viðbót. Það var skilningur á milli okkar að ég myndi þá mögulega fara í vetur, gagnkvæmt samkomulag um að ég tæki tímabilið 2025 alveg 100% en hugsaði þetta sem óformlega uppsögn (e. letter of resignation)."

„Svo var framhaldið ekki undir mér komið, ef Breiðablik vildi ekki fá mig þá hefði það bara verið þannig. Breiðablik var í Evrópukeppni, tímabilið þeirra var svolítið langt og þeir kannski ekki farnir að pæla í næsta tímabili, þess vegna gerist þetta svolítið seint. Ég var ekkert að pressa á eitt né neitt, en þegar þetta kemur þá fór ég til Sævars og sagði við hann að við hefðum rætt þetta í fyrra og að ég hafi þá verið tilbúinn að taka slaginn og ekkert mál, en núna vil ég í alvörunni að þið finnið lendingu með Blikunum. Mig langaði að keyra á þetta, ég þurfti smá að sannfæra KA um að fara í þessa átt. Ég þurfti líka að sannfæra frúna, hún var komin í flotta vinnu sem henni leið mjög vel í og boltinn var svolítið farinn að rúlla smurt fyrir okkur."

„Ég hugsaði að það nær enginn árangri í einhverjum þægindaramma og reif allt upp með rótum - ákvað að kýla á að fara suður,"
segir Ívar á léttu nótunum.

Dýrasti varnarmaður Bestu deildarinnar
Lausnin varð sú að Breiðablik greiddi um 14 milljónir króna fyrir Ívar sem gerir hann að dýrasta varnarmanni sem hefur verið keyptur á Íslandi. Ívar er að verða þrítugur og átti innan við ár eftir af samningi sínum við KA, verðmiðinn þykir því nokkuð hár. Ertu stoltur af verðmiðanum?

„Það eina sem ég er stoltur af er að báðir aðilar fóru sáttir frá borði, Breiðablik fékk leikmanninn sem þeir vildu greinilega fá, KA fékk ákveðna summu - ég gat skilið eftir smá pening eftir mig sem félagið getur nýtt í næsta leikmann sem mér finnst frábært. Pæli ég í því hver upphæðin var? Alls ekki, enda kemur hún mér ekkert við. Ég er ánægður og sáttur með að Breiðablik og KA gengu sátt frá borði."

Ívar er næstdýrasti leikmaður sem hefur verið keyptur innanlands, einungis Gylfi Þór Sigurðsson er dýrari. Kitlar það ekkert?

„Nei, þú þekkir mig nú, ég er frekar jarðbundinn einstaklingur og er ekkert að kippa mér upp við þetta. Ég er ekkert að klobba tvo og smyrja boltann upp í skeytin á æfingu fyrir vikið - ég geri mér alveg grein fyrir því. Ég þarf að halda mér á jörðinni og halda áfram að vinna á þeim eiginleikum sem ég er góður í. Ég er ekkert að missa vatn yfir þessari upphæð."

„Þetta met verður slegið tíu sinnum áður en mörg ár líða held ég. Ég er bara að setja standardinn,"
segir Ívar léttur.

Gullkista
Þegar þú ræddir við Breiðablik, er augljóst markmið hjá félaginu að liðið á að verða meistari í sumar?

„Já, ég myndi halda það. Það var ekkert sett beint út, við töluðum mikið um stílinn sem Breiðablik spilar, við yrðum að vera aðeins stærri, ekki verða litlir. Það er ekkert launungarmál að það eru einhver 4-5 lið sem eru með það sem markmið að vinna deildina. Líka eins og íslenski boltinn er settur upp í dag, það að verða Íslandsmeistari er mesta gullkista sem þú getur dottið í. Ekki nóg með að þú vinnur skjöld, heldur ertu kominn í þetta Champions Path (Meistaraleiðina í Evrópu). Það að verða Íslandsmeistari er ofboðslega mikils virði. Það er markmið margra liða að verða Íslandsmeistari, og þar á meðal er Breiðablik. Ég væri ekkert að fara hingað ef markmiðið væri bara topp sex."

Fyrirspurn frá ÍA
Var eitthvað annað félag sem hafði áhuga á þér eða reyndi að fá þig í vetur?

„Ekkert sem kom beint á borði til mín. Ég held að ég megi alveg segja frá því að ÍA spurðist fyrir um mig í gegnum fyrrum þjálfarinn minn, Deano, sem var með mig í 5. og 6. flokki. Bara forvitnisfyrirspurn hvernig staðan væri - fór þá leið til Sævars. Þetta fór aldrei til mín, heldur frétti ég þetta í gegnum þriðja aðila. Ég hef þekkt Deano mjög lengi. Ég held að það hafi verið það eina fyrir utan Breiðablik sem kom upp. Það eru allir komnir með einhver forrit og öpp til að mynda sínar stefnu. Ætli maður passi nokkuð inn mörgum stöðum?"

Erfitt að horfa til baka á KA heimilið
Hvernig er að kveðja KA, segja bless í bili allavega?

„Það var miklu, miklu erfiðara en ég gerði mér nokkurn tímann grein fyrir. Þetta gerðist svo fljótt einhvern veginn, byrjað að spyrjast út og var svo tilkynnt áður en ég náði að tala við strákana. Eftir að ég talaði einn á einn við þá sem ég hafði spilað lengst með. Ég kvaddi svo hópinn, knúsaði alla."

„Þegar ég týndi skópörin og draslið saman í poka, labbaði heim og sneri mér við - ég bý hliðina á KA heimilinu... það mátti ekki blása í augun á mér. Þetta var alveg djöfull erfitt, en ég held líka heilbrigt. Þetta var ekki eftirsjá, þetta er bara klúbburinn sem er búinn að ala mig upp. Þetta var svolítið eins og að skilja við konuna eða eitthvað. En svo vaknarðu daginn eftir og þá er kominn ný áskorun, hún er í Kópavogi og ég er rosalega spenntur fyrir henni."


Bjóst jafnvel við skítkasti en fékk bara skilning
Sýndu þínir menn í KA þér skilning?

„Já, ég fann fyrir rosalega miklum skilning, fékk ekkert annað en hamingjuóskir og meira að segja þeir allra hörðustu sýndu þessu skilning. Ég mætti mikilli auðmýkt og það kom alveg smá á óvart, hélt ég myndi nú fá eitthvað skítkast frá einhverjum, en það voru eiginlega allir sem skildu þetta."

Kallar eftir breytingu hjá KA
Hvernig líður þér með stöðuna á KA? Í fyrra fór Daníel Hafsteinsson og Sveinn Margeir Hauksson, núna ferð þú. Þú sagðir áðan að það er mjög erfitt að gera kröfu á Íslandsmeistaratitil hjá KA, en þið urðuð bikarmeistarar. Er eitthvað sem vantar upp á sem hefði orðið til þess að þú, eða þið, hefðuð verið áfram?

„Nei, það vantar ekkert upp á þannig séð. Þeir hefðu getað sótt tíu landsliðsmenn, og þá væri kannski annað upp á teningnum. Málið er líka bara þannig að þetta er á Norðurlandi, þetta er fjórum og hálfum tíma frá Reykjavík. Það er staðreynd málsins að ef KA vill fá ungan og spennandi leikmann, þá er hann frekar tilbúinn að fara í næsta bæjarfélag nálægt sér, í staðinn fyrir að fara til Akureyrar. Ég á alltaf jafn erfitt með að kyngja því. Ég held að fyrir unga leikmenn að komast norður væri besta stökk sem þeir gætu mögulega gert. Það er búinn að vera stefna KA í svolítinn tíma núna að sækja á svæðið Norðurausturlandi, sem er æðislegt, en staðreyndin er sú að það er í besta falli einhvers konar uppfyllingarefni. Kannski ertu með einn og einn óslípaðan demant inn á milli, maður veit aldrei, en að fá Íslendinga til Akureyrar hefur alltaf verið svakalega mikið ströggl. Ég held að þú getir talað við hvern einasta leikmann, hvort sem það er í KA eða Þór, sem hefur tekið skrefið og flutt norður, þeir hafa allir jafngóða sögu að segja. Ég hélt þetta myndi fara að breytast, en þetta er alltaf sama gamla mýtan með að það að vera úti á landi sé erfiðara. Það er svolítið staðreynd málsins, þau félög eru seinust til að fá sína bita. Menn vilja setja kröfu á að vera með gæðaleikmenn og þá er það bara ákveðin biðröð, menn eru að bíða eftir gluggum hér og þar áður en þeir koma til Íslands. KA er engin undantekning á því."

„Það var engin uppgjöf sem ég fann frá KA, mér finnst bara sumir hlutir sem þurfa kannski að fara breytast fyrir norðan. Sævar þarf kannski að fara læra dreifa álaginu, hann er að taka öllum höggum, er að taka allar ákvarðanir. Ég held að þetta sé ekkert svona í öðrum klúbbum á Íslandi í dag. Það er byrjað að dreifa álaginu, komnar fleiri stöður hjá félögunum og meiri mannskapur til að taka fleiri ákvarðanir og hafa fleiri augu á fleiri stöðum. Það er einhver þróun sem KA þarf að fara í jafnt og þétt. Ég veit að það er ekkert hægt að umturna öllu á einni nóttu, en það þarf að gera þetta hægt og rólega."

„Á sama tíma eru mjög spennandi leikmenn að koma upp hjá KA, ég held það væri enginn heimsendir fyrir KA að taka miðjumoðstímabil og leyfa þessum strákum að spila. Inn á milli eru svakalega góðir leikmenn; fer ekkert á milli mála að þetta eru gæðaleikmenn. Ef að þeir geta spilað ungu leikmönnunum og nýtt þeirra hlaupagetu, þá á KA alveg að geta strítt öllum liðum í deildinni. Ég held að það sé ekki spurning."


Verður skrítið að fara í gestaklefann
Hvernig heldur þú að það verði að spila á móti KA í sumar?

„Guð minn almáttugur, það verður skrítið, það hefur aldrei gerst. Ég hef farið á lán tvisvar, en aldrei spilað við KA."

„Það verður líka sérstaklega skrítið að fara í KA heimilið og í útiklefann. Ég held það sé klefi eitt, Lundaskólaklefinn, andstæðingarnir koma allavega alltaf úr þeirri átt þegar við mætumst þarna niðri."


Stoltur og lítur á sögu sína sem góða fyrirmynd
Ívar varð bikarmeistari með KA 2024, braut sér leið inn í liðið og var í stóru hlutverki 2022 þegar liðið endaði í 2. sæti Bestu deildarinnar og lék sex Evrópuleiki með liðinu. Ertu stoltur af tíma þínum í KA?

„Ég er ógeðslega stoltur, líka að sagan mín sé bara besta fyrirmynd fyrir ungan leikmann sem er að koma upp, sama hjá hvaða liði það er. Fótbolti er ekki þannig að það eru alltaf allar dyr opnar, það er ekki þannig að það er bara einhver flugbraut fyrir framan þig og þú þarft bara að spila vel hér til að komast áfram. Þetta er alltaf ströggl, þú mætir mörgum lokuðum dyrum."

„Ég veit ekki hversu oft það var keyptur vinstri bakvörður þegar ég var að komast upp í meistaraflokk. Ég tók einu sinni pirringskast af því ég fór út í U21 landsleik en þá er maðurinn sem var að spila í minni stöðu mættur aftur eftir meiðsli og ég sé ekki völlinn eftir það. Ég er búinn að þurfa að ströggla svakalega mikið hjá KA og búinn að þurfa berjast fyrir hverri einustu mínútu sem ég hef fengið að spila. Það er ekki nema kannski 3-4 ár aftur í tímann frá því að ég varð alvöru byrjunarliðsmaður. Ég geri mér fullkomlega grein fyrir því að ég blómstraði seint í fótboltanum og Hallgrímur Mar er líka dæmi um svoleiðis. Þetta er að mörgu leyti þroskatengt, maður var bara ekki nógu þroskaður áður fyrr. Ég er með svakalega mikla þrautseigju og ég er þrjóskari en andskotinn. Það kom mér yfir línuna að lokum, ég setti hausinn niður, vann vinnuna og mætti á æfingarnar. Ég hef aldrei verið meiddur, alltaf verið til taks þegar byrjunarliðið er lesið upp sem er frábær kostur."

„Ég myndi segja að ég sé ofboðslega stoltur af mínum tíma og ég vona innilega að leikmenn sem eru kannski ekki í byrjunarliðinu í 2. eða 3. flokki eða eru að taka skrefið upp í meistaraflokkinn og eru að lenda svolítið á veggjum átti sig á því að að er enginn heimsendir. Það þarf ekki alltaf að fara á láni eða fara í nýtt lið. Þú þarft líka stundum að taka því og læra af næsta manni. Svo þarf að vera þolinmóður, þetta er þolinmæðisvinna."


Tekur samkeppni með opnum örmum
Út frá þessu svari er óhætt að segja að Ívar sé ekki hræddur við samkeppnina hjá Breiðabliki. Þar eru fyrir Ásgeir Helgi Orrason og Viktor Örn Margeirsson að berjast um miðvarðastöðurnar.

„Alls ekki, ég tek samkeppni með opnum örmum. Í mínu liði vil ég hafa eins góða leikmenn og hægt er, ef það þýðir að ég þurfi að sitja af og til á bekknum þá er ég gjörsamlega til í að kyngja því. Ég er fyrst og síðast liðsmaður og þetta er liðsíþrótt. Þó að það séu alltaf einhverjir einstaklingar sem blómstra, þá er það liðið sem fær stigin, ekki einstaklingurinn. Ég vil hafa bestu leikmennina í öllum stöðum í mínu liði, ef það þýðir samkeppni, þá bara bíð ég hana velkomna."

Svekktur og vonast eftir landsliðskallinu næst
Undirritaður las viðtal við Ívar á mbl þar sem hann kvaðst svekktur að vera ekki í landsliðinu sem mætir því mexíkóska í kvöld. Fannst þér litið framhjá þér?

„Ég veit það nú ekki, það var pottþétt meðvituð ákvörðun um að taka mig ekki með, og það er bara gott og gilt. Þetta var leiðinlegt og ég var klárlega svekktur. Ég var alls ekki að gera ráð fyrir því að vera valinn, en það hefði verið æðislegt. Ég sagði við mbl að það væri auðvitað markmiðið að ná landsleik, það er ein mesta viðurkenning sem þú færð sem fótboltamaður að fá að spila fyrir þjóðina. Auðvitað er það markmiðið hjá mér líka, hvort sem það er janúarverkefni eða hvað sem er. Leikur er leikur og þegar ég er fimmtugur og með eitthvað matarboð, þá væri ég til í að geta hent þessu fram."

Heldur þú að þetta hafi verið tækifærið?

„Alveg klárlega, þetta var dauðafæri. En það kemur gluggi eftir þennan glugga. Ég held áfram í vonina að fá einhvern tímann kallið. Ég er í þessu til þess að ná einhverjum árangri. Núna eru það þessir sem voru valdir sem fá tækifæri til að blómstra og það er bara hrós á þá, þeir eiga þetta allir skilið. Vonandi fæ ég kallið næst," segir Ívar.
Athugasemdir
banner
banner