Gibbs-White, Anderson, Onana og Nmecha á blaði Man Utd - Diomande orðaður við ensku úrvalsdeildina - Cambiaso eftirsóttur
   mið 25. febrúar 2026 22:39
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Meistaradeildin: Galatasaray kláraði dæmið í framlengingu
Mynd: EPA
Juventus 3 - 2 Galatasaray (5-7 samanlagt)
1-0 Manuel Locatelli ('37 , víti)
2-0 Federico Gatti ('70 )
3-0 Weston McKennie ('82 )
3-1 Victor Osimhen ('105 )
3-2 Baris Yilmaz ('119 )

Það var magnaður leikur á Ítalíu í kvöld þar sem Juventus fékk Galatasaray í heimsókn í umspili um sæti í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

Það var ljóst að róðurinn yrði þungur fyrir Juventus þar sem Galatasaray vann fyrri leikinn 5-2.

Juventus byrjaði hins vegar betur þar sem Manuel Locatelli sá til þess að liðið var með eins marks forystu í hálfleik þegar hann skoraði úr vítaspyrnu.

Strax í upphafi seinni hálfleiks fékk Lloyd Kelly, varnarmaður Juventus, rautt spjald. Hann stökk upp í skallabolta og á leiðinni niður traðkaði hann á Baris Alper Yilmaz.

Þrátt fyrir að vera manni færri náðu þeir að jafna einvígið. Federico Gatti skoraði annað mark liðsins og Weston McKennie skoraði það þriðja þegar skammt var til loka venjulegs leiktíma.

Það þurfti því að framlengja en þar reyndust gestirnir sterkari. Victor Osimhen kom Galatasaray yfir í einvíginu og Yilmaz kláraði verkefnið með marki undir lokin. Tyrkneska liðið er því komið áfram þrátt fyrir 3-2 tap í kvöld.
Athugasemdir
banner