Það biðu margir eftir leik Real Madrid og Benfica á Santiago Bernabeu í kvöld en Real Madrid var með eins marks forystu eftir fyrri leik liðanna í Portúgal.
Eftir tæplega stundafjórðung kom fyririgjöf inn á teig Real Madrid og Raul Asencio tæklaði boltann á markið en Thibaut Courtois varði boltann út í teiginn. Rafa Silva var fyrstur að átta sig og kom Benfica yfir.
Strax í kjölfarið skoraði Aurelien Tchouameni með skoti við vítateigslínuna og kom Real Madrid aftur yfir í einvíginu.
Arda Guler hélt að hann hafði skorað annað mark Real Madrid eftir hálftíma leik en Gonzalo Garcia var hársbreidd fyrir innan í aðdragandanum og rangstaða dæmd.
Vinicius Junior hefur verið mikið í umræðunni eftir fyrri leikinn en hann innsiglaði sigur Real Madrid undir lokin.
Það var spenna í Frakklandi þar sem PSG fékk Mónakó í heimsókn. PSG vann fyrri leikinn 3-2. Mónakó jafnaði einvígið undir lok fyrri hálfleiks þegar Maghnes Akliouche kom boltanum í netið.
Marquinhos og Khvicha Kvaratskhelia skoruðu með stuttu millibili í seinni hálfleik og komu PSG í góða stöðu. Það var hins vegar spenna undir lokin þegar Jordan Teze jafnaði í 2-2.
Wout Faes var hársbreidd frá því að skora í blálokin og jafna metin í einvíginu en hann skallaði boltann rétt framhjá og þar við sat.
Það er framlenging í gangi hjá Juventus og Galatasaray eftir ótrúlega endurkomu Juventus. Liðið tapaði fyrri leiknum 5-2 en liðinu tókst að skora þrjú mörk í kvöld og knýja fram framlengingu.
Juventus 3 - 0 Galatasaray (Framlengt)
1-0 Manuel Locatelli ('37 , víti)
2-0 Federico Gatti ('70 )
3-0 Weston McKennie ('82 )
Rautt spjald: Lloyd Kelly, Juventus ('48)
Paris Saint Germain 2 - 2 Monaco
0-1 Maghnes Akliouche ('45 )
1-1 Marquinhos ('60 )
2-1 Khvicha Kvaratskhelia ('66 )
2-2 Jordan Teze ('90 )
Rautt spjald: Mamadou Coulibaly, Monaco ('58)
Real Madrid 2 - 1 Benfica
0-1 Rafa ('14 )
1-1 Aurelien Tchouameni ('16 )
2-1 Vinicius Junior ('80 )
Athugasemdir




