Í kvöld verður ljóst hvaða lið taka þátt í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Það komust fjögur lið áfram úr umspilinu í gær og fjögur lið til viðbótar í kvöld.
Meistaraspáin er skemmtileg keppni sem er spiluð með fram útsláttarkeppninni. Sérfræðingar í ár eru Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Stjörnunnar í Bestu deild kvenna, og Gylfi Tryggvason, þjálfari Grindavík/Njarðvíkur í sömu deild. Aðili frá Fótbolta.net spáir einnig í leikina. Spáð er um úrslit allra leikja í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar. Fyrir hárréttar lokatölur fást þrjú stig en eitt stig ef rétt tákn er á leiknum.
Svona er spáin fyrir leiki kvöldsins:
Meistaraspáin er skemmtileg keppni sem er spiluð með fram útsláttarkeppninni. Sérfræðingar í ár eru Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Stjörnunnar í Bestu deild kvenna, og Gylfi Tryggvason, þjálfari Grindavík/Njarðvíkur í sömu deild. Aðili frá Fótbolta.net spáir einnig í leikina. Spáð er um úrslit allra leikja í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar. Fyrir hárréttar lokatölur fást þrjú stig en eitt stig ef rétt tákn er á leiknum.
Svona er spáin fyrir leiki kvöldsins:
Gylfi Tryggvason
Atalanta 1 - 1 Dortmund (0-2)
Ég set bara 1-1 á þetta en eitthvað sem segir mér að þetta verði stórfurðulegur leikur. Ég skil ekki alveg mekanismann í þessu einvígi. Eina sem ég veit er að Dortmund fer 100% áfram.
Juventus 2 - 1 Galatasary (2-5)
Ég veit ekki hvaða þvæla átti sér stað í síðustu viku en þetta einvígi er í hið minnsta afgreitt. Galatasary kláruðu einvígið í síðasta leik, nú snýst þetta um að halda andliti og bæði lið sætta sig við nauman sigur Juventus í þessum leik.
PSG 3 - 1 Mónakó (3-2)
Kvaratskhelia sýningin heldur áfram og PSG labbar frekar þægilega í gegnum þetta einvígi eftir brösuga byrjun.
Real Madrid 3 - 0 Benfica (1-0)
Enginn José. Engin rómantík. Þvottakörfutrixið hans virkar ekki árið 2026 og hann verður því að missa af leiknum. Real Madrid mæta vel gíraðir í þennan leik. Vini, Tchouaméni og Camavinga skora.
Óskar Smári Haraldsson
Atalanta 0 - 1 Dortmund (0-2)
Dortmund unnu öruggan 2-0 sigur í fyrri leiknum og klára þessa viðureign 0-3. Ég hitti Allan Frey Vilhjálmsson vin minn af Skaganum í Bónus Mosfellsbæ í vikunni. Hann svoleiðis öskraði á mig að Serhou Guirassy myndi skora fyrir Dortmund í sömu andrá og hann lagði blátt Nóa Kropp og tveggja lítra kók í innkaupakerruna. Ég trúi manninum.
Juventus 0 - 3 Galatasaray (2-5)
Juve í einhverri sögulegri lægð og fengu alvöru rassskellingu út í Tyrklandi. Þessi lægð mun bara halda áfram og Tyrkirnir mæta til Ítalíu og klára einvígið á annarri rassskellingu. La Gazzetta dello Sport mun svoleiðis slátra Juventus eftir leikinn.
PSG 1 - 2 Mónakó (3-2)
Ég er ekki aðdáandi þessarar viðureignar, en ég ætla spá dramatík. 1-2 eftir venjulegan leiktíma, en PSG fara Öxnadalsheiðina í 16-liða úrslit og klára þetta í vítaspyrnukeppni.
Real Madrid 3 - 0 Benfica (1-0)
Öll spjót beinast til Madrídarborgar. Hvað sagði Gianluca Prestianni við Vinicius? Tek enga afstöðu í þessu máli en ætla samt að taka það fram að ég er enginn aðdáandi Vinicius. Hann minnir mig óneitanlega á Pál Sindra vin minn, frekjuhundur og grenjuskjóða. Annars held ég að þetta verði ansi þægilegt fyrir heimamenn sem skora snemma og sigla þessum sigri þægilega í höfn svo í seinni hálfleik. Það mun 100% fara rautt kort á loft, ætli Otamendi taki það ekki á sig?
Fótbolti.net - Jóhann Þór Hólmgrímsson
Atalanta 1 - 1 Dortmund (0-2)
Atalanta kemst yfir og fá byr í seglin en vonir þeirra verða að engu þegar Dortmund skorar seint eftir harða atlögu Ítalana.?
Juventus 2 - 0 Galatasaray (2-5)
Eftir vonbrigðin í fyrri leiknum munu Juventus menn ráða ríkjum í kvöld en það bara dugir ekki til.?
PSG 2 - 0 Mónakó?(3-2)
Þetta verður bara nokkuð þægilegt. PSG kann þetta.
Real Madrid 3 - 0 Benfica
Vinicius Junior kemur ákveðinn inn í þennan leik og skorar þrennu. Hann mun fara í taugarnar á öllum Benfica mönnum og gott ef það verður ekki hasar í lokin á vellinum og í stúkunni.
Staðan í heildarkeppninni:
Óskar Smári - 8
Fótbolti.net - 7
Gylfi Tryggva - 6
Athugasemdir



