Fotbolti.net
25.02.26 - 21:44
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Sjáðu furðulegt rautt spjald á Kelly - Juve búið að jafna einvígið

Kelly í baráttunni í fyrri leiknum

Kelly í baráttunni í fyrri leiknum

Canon

Mynd: EPA

Það er spennandi leikur á Ítalíu þar sem Juventus tekur á móti Galatasaray í umspili um sæti í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

Juventus steinlá 5-2 í Tyrklandi en þegar þetta er skrifað er Juventus 3-0 yfiir og hefur jafnað einvígið.
Það kom upp umdeilt atvik strax í upphafi seinni hálfleiks þegar Lloyd Kelly, varnarmaður Juventus, var rekinn af velli.

Hann fór upp í skallabolta og Baris Alper Yilmaz ýtti við honum. Kelly lenti með takkana á ökklanum á Yilmaz og uppskar sitt annað gula spjald og þar með rautt. Eftir að dómarinn skoðaði atvikið í VAR tók hann gula spjaldið til baka og gaf honum beint rautt spjald.


Lloyd Kelly red card vs Galatasaray
by
u/977x in
soccer
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.