Fotbolti.net
25.02.26 - 20:23
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Jói útherji

Sjáðu mörkin: Benfica jafnaði einvígið en Tchouameni svaraði strax

Sjáðu mörkin: Benfica jafnaði einvígið en Tchouameni svaraði strax
Canon

Mynd: EPA

Benfica jafnaði einvígið gegn Real Madrid eftir aðeins stundafjórðung á Santiago Bernabeu.
Það hefur verið mikið rætt og rtiað um þennan leik þar sem Gianluca Prestianni er í tímabundnu banni en Vinicius Junior sakaði hann um rasisma.

Vinicius skoraði eina markið í fyrri leiknum en Rafa Silva jafnaði metin í einvíginu eftir stundafjórðung í kvöld. Raul Asencio tæklaði boltann í átt að marki en Thibaut Courtois varði boltann út í teiginn þar sem Silva var fyrstur á boltann og skoraði.

Real Madrid var ekki lengi að jafna metin því Aurelien Tchouameni skoraði með góðu skoti við vítateigslínuna strax í kjölfarið.

Sjáðu mark Silva
Sjáðu marki Tchouameni
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.