Úrslitaleikur Reykjavíkurmóts karla fer fram í kvöld. Íslandsmeistarar Víkings taka þar á móti Lengjudeildarliði Þróttar klukkan 19.
Leikurinn verður í beinni textalýsingu hér á síðunni
Gul veðurviðvörun vegna talsverðrar snjókomu tók gildi á höfuðborgarsvæðinu í dag og gildir til sjö í kvöld. Hún setur þó ekki strik í reikninginn varðandi leikinn.
Víkingur hefur tilkynnt að leikurinn fari fram á tilsettum tíma á heimavelli hamingjunnar. Hinsvegar er búið að fresta leik kvennaliðs Víkings gegn Breiðabliki.

Víkingar verða án nokkurra lykilmanna sem eru með íslenska landsliðinu í Mexíkó. Þar á meðal er Gylfi Þór Sigurðsson.
Víkingur fékk tíu stig úr fjórum leikjum í riðlakeppni mótsins. Liðið vann ÍR, Leikni og Fjölni en gerði jafntefli við Fram. Þróttur fékk sjö stig úr sínum þremur leikjum í riðlakeppninni. Liðið vann KR og Val en gerði jafntefli við Fylki.
KR vann Reykjavíkurmótið í fyrra eftir úrslitaleik gegn Val.
Kæru Víkingar. Vegna veðurs hefur leik Breiðabliks og Víkings í Lengjubikar kvenna sem fram átti að fara í kvöld verið frestað. Leikur Víkings og Þróttar í úrslitum Reykjavíkurmóts karla fer fram eins og áætlað var og hefst kl. 19:00 í kvöld í Hamingjunni! pic.twitter.com/hwVLHwBe5t
— Víkingur Fótbolti (@vikingurfc) February 25, 2026
Athugasemdir