Fotbolti.net
25.02.26 - 23:18
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Völsungur dregur liðið úr Lengjubikarnum (Staðfest)

Völsungur dregur liðið úr Lengjubikarnum (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Völsungur hefur tekið þá ákvörðun að draga lið sitt úr keppni í Lengjubikarnum. Liðið var í riðli með Þór, Val, Aftureldingu, íA og Gróttu en liðið hafði spilað tvo leiki þar sem liðið tapaði stórt gegn Þór og ÍA.

Ástæðan er sú að það eru fáir leikmenn til taks um þessar mundir. Liðið er skipað ungum leikmönnum en eldri og reyndari eru að glima við meiðsli. Þá eru erlendir leikmenn á leið til landsins á næstu dögum.
„Á þessum tímapunkti er það mat þeirra sem standa að liðinu að best sé að skrá liðið úr keppni þar sem ekki verður komin heildarmynd á liðið fyrr en um miðjan marsmánuð," segir í tilkynningu frá félaginu.

„Stefnan er að spila æfingaleiki í mars- og aprílmánuði þannig að liðið verði klárt í bátana þegar bikarkeppnin hefst 28. mars og svo Íslandsmótið í lok apríl mánaðar."

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.