Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 25. mars 2023 10:20
Aksentije Milisic
Sjeik Jassim búinn að leggja inn nýtt tilboð í Man Utd
Mynd: Jassim Bin Hamad Al Thani

Katarinn Sjeik Jassim er búinn að leggja inn nýtt tilboð í Manchester United en þessu greina helstu miðlar frá rétt í þessu.


Hópurinn sem Sjeik Jassim frá Katar stendur fyrir er sagður vera vongóður um að þetta gangi í gegn og að tilboðið sé það besta fyrir klúbbinn, stuðningsmennina og nærsamfélaginu.

Tilboðið var lagt inn í nótt en núna er boltinn alfarið hjá Glazers fjölskyldunni. Það mun fjarlægja allar skuldir félagsins. Tilboðið er sagt vera skynsamlegt og yfirvegað. 

Þeir sem eru nálægt Glazer fjölskyldunni segja að búið sé að setja verð á félagið. Menn eru hræddir um að Glazers vilji fá meira en sex milljarða punda.

Tilboðið frá Jassim er talið vera í kringum fimm milljarða punda.


Athugasemdir
banner