„Við erum yfirvegaðir, einbeittir og tilbúnir," sagði Jesse Marsch, þjálfari kanadíska landsliðsins, við fjölmiðlamenn eftir æfingu liðsins í gær.
Kanada er gestgjafi á HM í sumar, ásamt Bandaríkjunum og Mexíkó, og undirbúningur kanadíska liðsins er í fullum gangi. Á laugardaginn tekur liðið á móti Íslandi í vináttulandsleik í Toronto.
Kanada er gestgjafi á HM í sumar, ásamt Bandaríkjunum og Mexíkó, og undirbúningur kanadíska liðsins er í fullum gangi. Á laugardaginn tekur liðið á móti Íslandi í vináttulandsleik í Toronto.
Kanada er í 29. sæti heimslistans en Ísland í 74. sæti.
„Það þarf að halda fókus og einbeitingu til að við séum tilbúnir að sýna góða frammistöðu í báðum leikjunum sem eru framundan. Við þurfum að halda okkar þróun áfram svo við verðum liðið sem við viljum verða," segir Marsch en Kanada mætir svo Túnis í næstu viku.
Góðar fréttir af Davies
Þekktasti leikmaður hópsins hjá Kanada er án vafa Jonathan David, fyrrum framherji Lille sem er í dag hjá Juventus. Það vantar hinsvegar Alphonso Davies, bakvörð Bayern München, sem hefur verið að glíma við erfið meiðsli. En Marsch er með góðar fréttir af honum í aðdraganda HM.
„Hann er á góðri leið. Hann var á einstaklingsæfingum úti á velli í síðustu viku og ég held að hann muni æfa með liðinu þegar það kemur saman aftur. Hann gæti jafnvel verið í hóp í fyrsta leik Bayern eftir landsleikjagluggann," segir Marsch.
Fyrsti leikur Kanada í sumar verður gegn sigurvegara úr umspili, mögulega Ítalíu, en í riðlinum eru einnig Kanada og Sviss. Leikur Kanada og Íslands næsta laugardag verður 17:00 að íslenskum tíma.
Athugasemdir


