Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   lau 25. maí 2019 11:42
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Alfreð vekur áhuga hjá tyrknesku meisturunum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Tyrkneskir fjölmiðlar segja frá því að Galatasaray, sem tryggði tyrkneska meistaratitilinn á dögunum, hafði áhuga á því að fá íslenska landsliðsframherjann Alfreð Finnbogason í sínar raðir.

Íslendingavaktin greindi fyrst frá þessu. Galatasaray er sagt vera tilbúið að bjóða 6 milljónir evra í Alfreð.

Alfreð á eitt ár eftir af samningi sínum við þýska úrvalsdeildarfélagið Augsburg. Hann skoraði 10 mörk í 18 leikjum í þýsku deildinni á liðnu tímabili en Augsburg endaði í 15. sæti.

Þessi þrítugi leikmaður var í löngu viðtali við Hjörvar Hafliðason, Dr. Football í vikunni þar sem hann sagðist rólegur yfir samningamálum sínum í Þýskalandi.

„Þeir vilja framlengja samningnum við mig og buðu mér samning í janúar sem ég setti til hliðar eða neitaði. Ég er ótrúlegt en satt rólegur yfir þessu, á meðan ég er meiddur. Ég vil bara ná mér góðum og mun setjast niður með þeim þegar ég kem aftur út. Hjá mér er ekkert stress og ég býst við að spila með Augsburg á næsta tímabili," sagði Alfreð.

Alfreð hefur verið að glíma við kálfameiðsli á tímabilinu og fór hann í aðgerð vegna þess. Hann missir af komandi landsleikjum í undankeppni EM, gegn Albaníu og Tyrklandi núna í júní. Hann vonast til þess að vera orðinn heill um miðjan ágúst.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner